Litli Bergþór - 01.12.1996, Blaðsíða 22
Þáttur af Jóni á Setbergi frh.
harðlynd nokkuð og átti það til að vera dálítið
snefsin í svörum. Hún var mikill forkur til allra
verka. Hjálpsöm og greiðvikin við þá sem minna
máttu sín. Sýndi stundum mikla höfðingslund og
átti það til að vera stórgjöful.
Þegar leið á búskaparferil Jóns fór að búa á
Setbergi í félagi við hann Guðjón sonur hans. Þeir
feðgar höfðu átt vel skap saman, enda báðir
lundþjálir og samvaldir í fjármenskunni og öðrum
bústörfum. Þeir áttu hvor sinn fénað bæði kindur og
annan búsmala. Féð var allt í einni hjörð, og í
þessum félagsbúskap var féð í sömu haust- og
vetrargæslu og áður hafði verið meðan Jón bar einn
ábyrgð á búrekstrinum. Jón á Setbergi var talinn
maður vel vitiborinn, einnig verklaginn og
afkastadrjúgur. Svo var einnig um marga hans
nánustu afkomendur.
Þegartil margra einstaklinga er litið í ætt þessari
finnst mér allgreinilegt að konur hafi verið körlum
fremri bæði að dugnaði og verklagni.
Enginn má taka það svo að ég álíti t.d. að synir
Jóns hafi verið einhverjir amlóðar, enda mun það
fjarri veruleikanum. Hitt er margvitað að erfðir
greinast á ýmsa lund. Mér kemur þess vegna í hug
að þetta hafi greinst svona sérstætt frá foreldrum
Jóns á Setbergi. Faðir hans Guðmundur Eiríksson
var einstakur fjármaður, m.a. svo fjárglöggur að sá
eiginleiki verður nærri að teljast til eindæma, og
vissulega hefur þetta erfst frá honum í allríkum
mæli.
Þó Guðmundur þessi væri verkfús og fljótur til þá
þótti hann hvorki bráðlaginn né burðarmikill. En
Guðbjörg Jónsdóttir móðir Jóns þótti bæði mikilvirk,
fjölhæf og mjög lagvirk. Einnig var Guðbjörg talin
stálgreind en bóndi hennar bara í meðallagi á því
sviði. Af því ég hefi mjög glöggar sagnir af þessum
langafa mínum trúi ég að hann hafi í ríkum mæli erft
bestu eiginleika frá báðum sínum foreldrum.
í lokin ætla ég að skrá börn þau sem Jón
eignaðist, þau voru ekki færri en 19 og 17 þeirra
náðu fullorðinsaldri.
Með fyrri konu sinni Guðrúnu Egilsdóttur átti hann
9 börn, sem hún ól á 11 árum.
1. Egill f. 21. júní 1846 í Haukadal, hann dó 14. nóv.
sama ár.
2. Guðlaug f. 20. okt. 1847, áTortuí
Biskupstungum hún dó á Setbergi 1869, þá 22ja ára
gömul. Ógift og barnlaus.
3. Guðbjörg, eldri, f. 13, febrúar áTortul849.
Hennar maður var Sveinn Einarsson frá Miðfelli. Bjuggu
fyrst í Syðra-Langholti svo í Asum í Gnúpverjahreppi.
Þau áttu 6 böm.
4. Guðrúnf. áTortu8. apríl 1850. Hennar maður var
Ámi Árnason verkam. Hafnarfirði. Þau áttu 3 böm.
5. Guðbjörg, yngri, f. áTortu3. ágúst 1851. Hennar
maður var Magnús Halldórsson frá Auðnum á
Vatnsleysuströnd. Þau fóru til Ameriku. Þau áttu 3
dætur.
6. Guðjón f. áTortu29. nóv. 1852. Dó 1913. Hans
kona var Stefanía Gísladóttir frá St. Lambhaga í
Hraunum. Bjuggu fyrst á Setbergi svo í Suðurkoti í
Krísuvík, síðast í Gerði í Hraunum. Þau áttu 2 syni.
(Hraunbæir var syðsta byggð í Garðahreppi).
7. Eiríkurf. áTortu5. águst 1854. Dó 1918. Hans
kona var Kristín Guðmundsdóttir, frá Kjarnholtum. Þau
bjuggu á ýmsum stöðum í Biskupstungum og alltaf við
mjög lítil efni. Þau áttu 7 böm. Eiríkur og Kristín vom
móðurforeldrar mínir.
8. Egill f. áTortul3. des. 1855. Hans kona Guðrún
Ólafsdóttir frá Elliðakoti. Þau bjuggu í Krísuvík. Þau
vom bamlaus.
9. Ingveldur f. á Tortu 22. okt. 1857. Hún dó
ungbam.
Með seinni konu sinni Vilborgu Jónsdóttur átti hann 10
börn, sem hún ól á 14 ámm.
10. Guðrún f. íEinholtió. maí 1859. Hennarmaður
var Sigurjón Jónsson frá Hraunprýði í Hafnarfirði. Þau
fóru til Ameríku. Þau áttu 3 böm.
11. Sigríðurf. áTortu20. maí 1860. Hennarmaður
var Helgi Sigurðsson verkamaður í Hafnarfirði. Þau áttu
7 böm.
12. Kristín f. á Tortu 12. maí 1861. Hennar maður
Hans Linnet kaupmaður í Hafnarfirði. Þau áttu 3 böm.
13. Ingveldur f. í'Helludal 22. okt. 1862. hennar
maður Þorkell Ámason frá Guðnabæ í Selvogi. Bjuggu
fyrst í Litla-Lambhaga og seinna á Þorbjamarstöðum,
sem eru Hraunbæir. Þau áttu 12 börn.
14. Vilborg f. á Bryggju 2. des. 1863. Dó21. apr.
1941. Hennar maður var Jón Guðmann Sigurðsson frá
Haukadal. Þau bjuggu fyrst í Haukadal síðan á Tortu en
lengst á Laug og við þann bæ var Vilborg jafnan kennd.
Þau áttu 14 böm.
15. Sigurbjörg f. á Hvaleyri 26. febr. 1865. Hennar
maður var Guðmundur Jónsson frá Urriðakoti, sem er
næsti bær við Setberg. í Urriðakoti bjuggu þau langa
búskapartíð. Þau áttu 12börn.
16. Elín f. á Hvaleyri 26. júní 1866. Hennar maður
var Þorvarður Ólafsson frá Vötnum í Ölfusi. Þau bjuggu
á Jófríðarstöðum. Þau áttu 10 böm.
17. Guðmundurf. áSetbergil. ágúst 1868. Hans
kona var Guðrún Guðmundsdóttir frá Hlíð í Garðahreppi.
Þau bjuggu fyrst á Setbergi fá ár, fluttust svo að Hlíð og
þaðan til Hafnarfjarðar. Þau áttu 3 böm.
18. Jón f. á Setbergi 12. júlí 1870. Dó ógiftur og
bamlaus 1926. Hafði ungur numið trésmíðar úti í
Noregi. Dó frá miklum efnum en engum afkomendum.
19. Rannveig f. á Setbergi 8. júní 1873. Hennar
maður var Kristinn Kristjánsson frá Hlíðarnesi á
Álftamesi. Þau áttu 4 börn.
Ekki er ofmælt að segja að Jón á Setbergi hafi
verið sæmilega kynsæll. Af þeim 17 börnum hans
sem upp komust áttu 14 þeirra afkomendur og
barnabörn hans voru 89 talsins.
Einhvern tíman nálægt aldamótum brugðu þau búi
Jón og Vilborg og flytjast þá til Hafnarfjarðar.
Langafi minn lifði fram á árið 1909 og hefir þá verið
á 85. aldursári. Vilborg deyr árið 1917 og hefur
líka verið á 85. aldursári því hún var átta árum yngri
en hann.
Hér lýkur að segja frá langafa mínum Jóni á
Setbergi. Hinum léttstíga smala og lundprúða
dreng.
Jón í Skollagróf.
Litli - Bergþór 22