Litli Bergþór - 01.12.1996, Page 25
Frá íþróttadeild U.M.F.B.
Körfubolti
Þá er nýtt körfuboltatímabil hafið. Eins og venjulega þurfti að byrja á því að leita að nyjum þjálfara. Við fengum til
liðs við okkur Sigurð Einar Guðjónsson nema í IKI. Hann kemur hingað einu sinni í viku og þjálfar tvo aldurshópa af
krökkum. Við tókum það til ráðs núna að leigja okkur sal á Laugarvatni fyrir heimaleikina, þar sem okkur finnst ekki
hægt að bjóða upp á aðstöðuna í Aratungu lengur. Það er öllum í óhag að spila í svona litlum sal.
Eldri hópurinn byrjaði á því að taka þátt í hraðmóti HSK sem haldið var á Laugarvatni í lok oktober. Þar var keppt í
tveimur riðlum. Okkar strákar unnu einn leik, en töpuðu þremur. Þeir lentu í 7.-8. sæti.
Nú er unglingamót HSK hafið og tveimur umferðum er lokið. Við töpuðum í fyrstu umferð fyrir Þór í Þorlákshöfn
með einu stigi í heimaleik á Laugarvatni. I annarri umferð fórum við austur að Laugalandi og kepptum þar við Garp og
unnum þá með 11 stiga mun. Þriðji leikurinn og sá síðasti fyrir jól verður á Laugarvatni 29. nóvember, en þá spilum
við á móti Umf. Selfoss. Eftir áramótin verður síðan haldið áfram og spilaðar sex umferðir til viðbótar. HSK er að
undirbúa fjölliðamót fyrir yngri krakkana og verður það vonandi bráðlega.
F.h. körfuknattleiksnefndar,
Aslaug Sveinbjörnsdóttir
Sundnámskeið var haldið í sumar í þriðja skipti. 18. júní komu 19 börn fædd
1989-1993 og lærðu að kafa, fleyta sér, blása, skólasundtökin og losna við
vatnshræðslu. Námskeiðið tókst mjög vel og voru bömin vel hress í lokin.
Sumir þorðu varla að stinga tánni í laugina fyrst, en voru svo farin að kafa að
lokum. Síðasta tímann var okkur svo boðið að koma á Selfoss og leika okkur í
lauginni þar. Þá hafði verið lækkað vatnsborðið, þannig að allir náðu í botn.
Kennari var í annað skiptið Magnús Tryggvason sundþjálfari frá Selfossi og á
hann þakkir fyrir. Hann náði vel til barnanna og góðum árangri.
Er það ósk okkar að sundnámskeið sem þessi eigi framtíð fyrir sér bamanna
vegna, því að allir vita að sundíþrótt er einna skaðlausasta og hollasta íþrótt í dag.
Þama eru án efa krakkar sem eiga eftir að verða dugleg og ná góðum árangri á
næstu ámm.
Sundæfingar fyrir eldri krakka voru reyndar, en ekki virtist vera nægur áhugi til
að hægt yrði að halda úti þjálfara. Þó reyndi Sigrún Guðjónsdóttir að segja til
eftir bestu getu með æfingaprógrami frá þjálfara, en krakkarnir tóku þetta ekki
mjög alvarlega og hættu að mæta smátt og smátt. A Sigrún þó þakkir fyrir að
reyna.
Við gemm bara betur næst.
Seinna holl. Sunddeild U.M.F.Bisk.
Fyrra holl.
Ill
SILFURSKART6RIPIR
Módelskartgripir úr silfri
með emaljeringu og steinum
eftir Toril Malmo Sveinsson til sölu
á Helgastöðum, Bisk. og í
Grœnu Greininni á Selfossi.
Einnig málverk og myndir.
Sími 486 8819. Verið velkomin!
Toril Malmo Sveinsson Helgastöðum
Litli - Bergþór 25