Litli Bergþór - 01.07.1997, Side 3
Ritstjómargrein
Aðalfundur Ungmennafélags Biskupstungna endurkaus enn ritnefnd þá er séð hefur um útgáfu
Litla-Bergþórs síðustu ár. Sýnir það að forusta og virkir félagar Ungmennafélagsins láta sér vel líka
hvernig blaðið er úr garði gert og hvað þar er lögð áhersla á.
Hlutverk Litla-Berþórs eru nokkur. Það er að sjálfsögðu fyrst og fremst málgagn
Ungmennafélagsins og flytur því allar helstu fréttir af starfinu hjá því, úrslit íþróttamóta og fréttir af
öðru, sem er verið að gera á vegum félagsins og birtir skilaboð og viðhorf stjórnar þess í sérstöku
formannspjalli. Einnig er reynt að greina frá starfi annarra félaga í sveitinni svo og því helsta, sem
fréttnæmt er að vettvangi sveitarstjórnar. Almenn tíðindi eru tíunduð í sérstökum fréttaþætti. Upp á
síðkastið hafa verið tekin nokkur viðtöl við fólk í sveitinni, sem hefur frá einhverju skemmtilegu að
segja, hvort sem er úr fortíð eða í nútíð. Sótt er eftir efni frá nemendum Reykholtsskóla, einkum því
sem er vel unnið og áhugavert. Stundum rekst ritnefnd á ýmislegt, sem snertir Tungurnar, í öðrum
ritum og bókum, sem hún metur þess virði að birta.
Flestu öðru efni koma höfundar á framfæri við ritnefnd. í vaxandi mæli verður þess vart að
höfundar vandaðra og vel unninna greina vilja fá þær birtar í Litla-Bergþór með það fyrir augum að
koma þeim á framfæri og að þær séu varðveittar, því eftir það eru þær aðgengilegar öllum um ókomna
tíð t. d. á Landsbókasafni.
Þetta er mikil viðurkenning á gildi blaðsins, en gerir jafnframt kröfu til að vanda allan frágang
þess.
Fjárhagur blaðsins byggist á áskriftargjöldum tryggra kaupenda, stuðningi nokkurra aðila, sem fá
vörur sínar og þjónustu kynnta í blaðinu, og sjálfboðavinnu ritnefndar og þeirra sem skrifa í blaðið, því
engin ritlaun eru greidd.
Hér er því um algjörlega sjálfstætt mennigarstarf að ræða, sem hefur verulegt gildi bæði fyrir
Ungmennafélagið og sveitina í heild. Það sýnir að ungmennafélögin hafa hlutverki að gegna við að
gefa mannlífinu í sveitarfélögum, þar sem þau starfa, þroskandi innihald.
A. K.
BISK-VERK
Tökum að okkur alla byggingastarfsemi
Nýsmíði - Viðhald
Sumarhúsaþj ónusta
Þorsteinn Þórarinsson, sími
Skúli Sveinsson...........
Bflasími
486 8782
486 8982
853 5391
Raflagnir - Viðgerðir
Tek að mér nýlagnir, hönnun raflagna og alla
almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum.
Efnissala og varahlutaþjónusta.
Fljót og góð vinna.
Jens Pétur Jóhannsson
Sumarbústaðaeigendur athugið að ég sæki
um öll leyfi fyrir heimtaug að
sumarhúsum og lagningu raflagna.
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
Heimasími 486-8845
Verkstæði sími 486-8984
Bílasími 853-7101
Litli - Bergþór 3