Litli Bergþór - 01.07.1997, Síða 6
Hreppsnefndarfréttir
Hreppsnefndarfundur 11. mars 1997.
Mættir voru allir hreppsnefndarmenn. Einnig voru
mættir Einar Sveinbjömsson endurskoðandi og
skoðunarmenn Biskupstungnahrepps Þorfinnur
Þórarinson og Sverrir Gunnarsson.
Ársreikningur sveitarsjóðs 1996, fyrri umræða.
Lagður fram ársreikningur Biskupstungnahrepps 1996
ásamt sundurliðun. Einar Sveinbjömsson
endurskoðandi, fór yfir reikninginn og skýrði hann.
Reikningurinn er undirritaður af Halldóri Hróari
Sigurðssyni og Einari Sveinbjörnssyni löggiltum
endurskoðendum og skoðunarmönnum
Biskupstungnahrepps Þorfinni Þórarinssyni og Sverri
Gunnarssyni.
Lagt fram bréf frá Sigurði Sigurðarsyni og Jóni
Pálssyni þar sem þeir fara fram á stuðning við sýningu
16 listamanna Myndhöggvarafélags ísl. í Skálholti í
sumar. Samþykkt að leggja fram kr. 10.000,-.
Lagt fram bréf Þjóðminjasafns Islands þar sem
hvatt er til skráningar fomleifa í heimabyggð.
Hreppsnefnd bendir á að unnið hafi verið að skráningu
fomleifa fyrir nokkmm ámm og veruleg gögn séu til um
þær.
Lagt fram bréf frá U.M.F.Bisk. ásamt ársreikningi
1996.
Fundarboð SASS. Aðalfundur SASS verður á Hótel
Geysi 4. og 5. apríl 1997. Kosnir voru á fundinn Gísli
Einarsson, Svavar Sveinsson og Sveinn Sæland.
Lagður var fram úrskurður Umhverfis-
ráðuneytisins um veitingu byggingarleyfis á Iðu II.
Málinu var vísað frá og f framhaldi af því samþ.
hreppsnefnd að auglýsa skipulagstillöguna til
staðfestingar.
Bréf Slysavarnadeilda á Suðurlandi þar sem farið er
fram á stuðning við gerð fræðslumyndar um jarðskjálfta.
Samþykkt að leggja fram kr. 25.000,-.
Lagt fram bréf frá Heilsugæslustöðinni í Laugarási,
þar sem þeir leggja til að sveitarfélög í Laugaráshéraði
sameinist um að ráða félagsráðgjafa og sálfræðing á
starfssvæði sitt. Hreppsnefnd tekur undir erindið og vísar
því til oddvitanefndarinnar.
Lagt fram bréf frá 26. 2.1997 frá Pétri
Skarphéðinssyni heilsugæslulækni varðandi tengingu
nýrrar heilsugæslustöðvar við varaaflstöð. Farið er
fram á kr. 200,- á íbúa. Samþykkt að leggja fram kr.
100,- á íbúa, enda verði kostnaði haldið í lágmarki.
Sent almannavarnarnefnd til umfjöllunar.
Lagt fram bréf frá Ferðamálaráði ísl. Ferðamálaráð
hefur samþ. að veita styrk til uppbyggingar gönguleiða
um Reykholt kr. 150.000,- og til gönguleiða í Laugarási
kr. 150.000,-. Hreppsnefnd staðfestir að hún muni nýta
styrkinn.
Lagt fram bréf frá Barnakór Biskupstungna með
ósk um fjárstyrk. Vísað til afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Fjárhagsáætlun. Frekari vinnslu frestað og afgreiðslu
frestað til næsta fundar.
Sveinn Sæland tekur sæti í hreppsráði af hálfu H-
lista.
Lagt fram bréf frá Orlofssjóði Bandalags
Hákólamanna, þar sem farið er fram á að sveitarfélagið
sjái um snjómokstur í Brekkuskógi. Samþykkt að kosta
mokstur í Brekkuskógi fyrir páska í ár.
Hreppsráðsfundur 20. mars. 1997.
Fjárhagsáætlun, framhaldsvinna.
Nefndarmenn yfirfóru hluta af fjárhagsáætluninni með
aðhald á rekstri í huga. Kristinn Bárðarson skólastjóri
mætti og gerði grein fyrir rekstri skólans.
Hreppsráðsfundur 2. aprfl 1997.
Vinna við fjárhagsáætlun. Haldið var áfram vinnu
við fjárhagsáætlun og ákveðið að ljúka tillögum um hana
á fundi 8. apríl kl. 10. Þá mætir endurskoðandi hreppsins
Einar Sveinbjömsson og aðstoðar við gerð þriggja ára
áætlunar.
Bréf frá U.M.F. Bisk. Undirskriftarlisti frá aðalfundi
Iþróttadeildar og áskorun um byggingu íþróttahúss.
Kynnt bréf frá Sorpstöð Suðurlands dags. 5.
febrúar 1997. Þar er leitað eftir áhuga sveitarfélaga á
söfnun pappírs. Ákveðið að boða saman umhverfísnefnd
og fá umhverfisfræðing Sorpstöðvarinnar á fundinn til
kynningar á málinu.
Bréf Félagsmálaráðuneytisins 12. febrúar, þar er
kynnt úthlutun stofnframlags vegna byggingar
íþróttahúss samtals kr. 1.000.000,- fyrir árið 1997.
Óskað er eftir málsettum grunnmyndarteikningum,
heildarkostnaðaráætlun og stuttri greinargerð um
framkvæmdamáta.
Bréf frá eigendum Klifs dagsett 11. mars 1997. Ósk
um leyfi til byggingar 60 m2 bústaðs á jörðinni.
Hreppsnefnd samþykkir og vísar erindinu til
bygginganefndar.
Bréf fjárhaldsmanns Héraðsnefndar dags. 22.
febrúar 1997. Þar kemur fram að hlutdeild
Biskupstungnahrepps vegna stofnkostnaðar og
meiriháttar viðhalds fyrri ára er kr. 72.079,-.
Bréf Samb. ísl. sveitarfélaga dags. 17. mars 1997.
Kynntur hluti kjarasamnings við kennara vegna
orlofsuppbótar.
Bréf Ásborgar, ferðamálafulltrúa, dags. 25. 3.1997.
Hún vísar til hlutafélagsins Langjökuls hf, sem leitað
hefur eftir samstarfi við Biskupstungnamenn um þátttöku
í hlutafélagi með það fyrir augum að allir aðilar sem
áhuga hafa á Langjökli til útivistar starfi saman.
Hreppsráð tekur jákvætt í málið og vísar því til Ferða-
málafélagsins, til kynningar meðal ferðaþjónustuaðila á
svæðinu.
Bréf frá Rarik dags. 16. mars 1997. Rarik fer fram á
lóðir undir spennistöðvar í Laugarási og Reykholti.
Hreppsráð leggur til að spennistöðin í Reykholti verði
færð yfir gatnamótin upp að hlið dæluhúss Hitaveitu
Reykholts en óbreytt í Laugarási.
Athugasemdir vegna deiliskipulags sumarhúsa á
Reykjavöllum. Ein athugasemd barst og kom hún frá
Litli - Bergþór 6