Litli Bergþór - 01.07.1997, Qupperneq 9
Hreppsnefndarfréttir
Fundargerð Héraðsnefndar dags. 3. maí 1997. Fram
kemur í fundargerðinni að óráðstafað sé vegna safnvega í
Biskupstungnahreppi 2 millj. kr. til að viðhalds og
nýbygginga á þessu ári.
Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga, dags. 20. maí 1997.
Samþykkt lánveiting til Biskupstungnahrepps að fjárhæð
kr. 8.millj.vegna skuldbreytinga. Útborgun lánsins
verður eftirfarandi: 40% fyrir 1. ágúst, 30% fyrir 1. okt.
og 30% fyrir 1. des.
Bréf frá Kynnisferðum dags. 29. maí 1997. Styrkur
til ferðamálaverkefnis kr. 50.000,-.
Kaupsamningur v/sumarhúss á Eiríksbakka dags.
23. maí. Hreppsráð leggur til að fallið verði frá
forkaupsrétti.
Fundargerð verkefnisstjórnar um stefnumótun í
ferðaþjónustu, dags. 26. maí 1997. Þar er m.a. vakin
athygli á samstarfi við Menntaskólann að Laugarvatni
við öll sveitarfélög sem að verkefninu standa. Með
fylgja drög að verklýsingu. Fjármögnun samstarfsins er
enn ekki frágengin, þannig að hugsanlega gæti
aukakostnaður fallið á sveitarfélögin ef af verður.
Hreppsráð leggur til að Biskupstungnahreppur verði aðili
að samstarfinu.
Kosning formanns þjóðhátíðarnefndar.
Hreppsnefnd samþykkir að Jórunn Svavarsdóttir verði
falin formennska í þjóðhátíðamefnd þetta vorið.
Bréf Peiks M. Bjarnasonar, dags. 2. júní 1997.
Farið er fram á að Biskupstungnahreppur neyti
forkaupsréttar að sumarhúsi og lóð á Eiríksbakka. Hann
myndi síðar kaupa eignina af hreppnum. Hreppsráð vísar
í bókun nr. 9 í þessari fundargerð og hafnar því erindinu.
Samningur milli Landgræðslu ríkisins og
Landgræðslufélags Biskupstungna kynntur og Gísla
falið að undirrita samninginn fyrir hönd hreppsins.
HreppsnefndarfundurlO. júní 1997
Skipulag Reykholts. Sveinn fór yfir plaggið
Stefnumótun - Framtíðarsýn Biskupstungnahreppur
1997-2017 og Stefnumörkun - Framtíðarsýn Reykholt
1997-2017. Samþ.var að leggja það fram sem greinargerð
með aðalskipulagi Reykholts 1997-2017.
Afgreiðsla tillögu um fækkun í hreppsnefnd. Við
atkvæðagreiðslu greiddu atkvæði með tillögunni Sveinn
Sæland, Drífa Kristjánsdóttir, Páll M.Skúlason. Á móti
vom Kjartan Sveinsson, Guðmundur Ingólfsson og
Svavar Sveinsson. Gísli Einarsson sat hjá. Tillagan féll
því á jöfnum atkvæðum.
Erindi Sorpstöðvar Suðurlands 29.maí. Á vegum
Sorpstöðvar Suðurlands er í athugun að samhæfa söfnun
á brotajárni. Samþ.að taka þátt í verkefninu enda leiði
það til aukinnar hagkvæmni.
Fundargerð Skólanefndar 9.júní 1997. Samþ. að
leita eftir skýrslu frá skólastjóra um kostnað við
skólahaldið á komandi vetri, þ.e. launakostnað, fjölda
starfsmanna, fjölda nemenda í bekkjardeildum,
samkennslu bekkjardeilda ásamt aukakostnaði
samkvæmt fundargerð skólanefndar 9. júní 1997.
Ályktun um Póstþjónustu. Hreppsnefnd samþykkir
að fara þess á leit við Póst og Síma hf. að póstflutningar
verði í Biskupstungum fimm daga vikunnar. Mörg
fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar í hreppnum reiða sig
á öflugt póstflutningskerfi vegna eðlis starfsemi sinnar.
Umsögn um endurnýjun gistiheimilisins að
Galtalæk. Sótt er um endurnýjun á leyfi til sölu gistingar
að Galtalæk. Hreppsnefnd mælir með leyfinu.
Hreppsnefnd Biskupstungnahrepps skorar á
Vegagerð ríkisins að sinna
viðhaldi á gömlu
Tungufljótsbrúnni og að
hún verði máluð nú í
sumar.
Bréf Fannars
Olafssonar um styrk vegnú
æfinga og keppnisferða.
Fannar hefur verið valinn í
unglingalandslið íslands í körfuknattleik, sem er
á förum á Norðurlandamót í sumar. Samþ. að
styrkja Fannar um 25.000 kr. Drífa
Kristjánsdóttir vék af fundi við afgreiðslu
málsins.
I ljósi þess að fyrir dyrum stendur
bygging íþróttahúss í Reykholti, sem
tengjast mun sundlaugarhúsinu er
fyrirsjáanlegt að þörf muni verða fyrir þann
hluta hússins sem nú hýsir afgreiðslu
Landsbankans. því óskar hreppsnefnd eftir viðræðum við
ráðamenn bankans um hvemig bregðast megi við þessari
nýju stöðu.
Tekið saman af D.K.
Enginn sveitarfundur í vor,
síðasta áriðfyrir kosningar.
Eg sem œtlaði að halda fyrstu
framboðsrœðuna þar.
TRÉ OG RUNNAR
TRJÁPLÖNTUR - SKJÓLBELTAPLÖNTUR - LIMGERÐISPLÖNTUR
ólafur ásbjörnsson GARÐYRKJUSTÖÐIN VÍÐIGERÐI
ASRUN BJORGVINSDOTTIR ......................
S. 486 8849 Fars. 853 7402 REYKHOLTI
s,____________________________________________>
Litli - Bergþór 9