Litli Bergþór - 01.07.1997, Síða 13
Húsdýragarðurinn í Slakka frh...
Blaðamaður Litla-Bergþórs sérfagurlega
innrammað leyfisbréf hangandi á vegg
veitingastofunnar, dagsett í maí 1997.
L-B: Eg sé að þið hafið fengið formlegt leyfi
fyrir liúsdýragarði hér í Slakka.
Helgi: Já, það er nú saga útaf fyrir sig og mikill
sigur fyrir okkur. Það er búið að taka okkur mörg ár
að fá það í gegn. Það var nefnilega hvergi í kerfinu
gert ráð fyrir svona dýragarði og engar reglur eða
lög til yfir þær kröfur, sem gera ætti til
húsdýragarða í einkaeign. En loksins í vor komust
þessar reglugerðir í gegn og þá gátum við fengið
formlegt leyfi. Við vorum að sækja það núna um
daginn.
L-B: Hvað rœktið þið ígróðurhúsunum?
Helgi: Við ræktum tómata, gúrkur og papriku.
L-B: Og hvernig tekst að samræma
gróðurhúsavinnuna og rekstur húsdýragarðs?
Helgi: Ef vel gengur er hægt að hafa fleira fólk í
vinnu. Við erum hér tvö allt árið, en á sumrin erum
við með 2-3 í vinnu. Ef vel ætti að vera, þyrftu að
vera hér tveir til viðbótar, en því höfum við ekki
efni á ennþá. Málið er að auka söluna til þeirra sem
hér koma, en til þess þurfum við að stækka
húsnæðið. Nú höfum við tekjur af aðgangseyri og
kaffisölu fyrir utan gróðurhúsin. Draumur okkar er
að selja meira af handavinnu, leirmunum og
kertastjökum, en gróðurhúsin taka það mikinn tíma
að vetrinum, að lítill tími vinnst til þess að
framleiða neitt að ráði.
L-B: Eg á alveg eftir að forvitnast um
fjölskylduhagi ykkar.
Helgi: Við Björg áttum sitt barnið hvort áður en
við byrjuðum að búa saman. Dóttir Bjargar,
Gunnur Ösp vinnur hér hjá okkur, sonur minn, Ivar
Örn var hjá okkur til 12 ára aldurs og gekk þá í
Reykholtsskóla, en er nú í bænum hjá móður sinni.
Nú saman eigum við svo einn son, Egil Óla, sem er
15 mánaða núna. Það má segja að hann sé lítið
kraftaverk, því við vorum búin að reyna að eignast
barn í mörg ár og búin að gefa það upp á bátinn.
Og ekki ber á öðru, þarna situr Egill Óli í grasinu
með dýrunum, með ljósar krullur eins og lítill engill
í sólinni. Brosandi út að eyrum með ísinn sinn um
allt andlit. Það væsir greinilega ekki um hann
frekar en dýrin og skömmu seinna er hann sofnaður
í vagninum sínum. Meðan við Helgi höfum setið að
spjalli hefur Björg verið á þönum, að sinna barni,
dýrum og gestum. Það er greinilega nóg að gera og
blaðamaður veit að þau eiga eftir að skreppa „í
bæinn“ í dag líka. Svo það er ekki til setunnar
boðið. Eftir að hafa smellt af nokkrum myndum af
dýrum og fólki í húsdýragarðinum, þakkar
blaðamaður Litla-Bergþórs fyrir sig og kveður þessi
önnum köfnu hjón með þakklæti fyrir móttökurnar
og óskum um velgengni í þessari óvanalegu
atvinnugrein.
G.S.
r
LEIF & ÆVAR
Hársnyrtistofa
Leifs og Ævars
Austurvegi 21 Selfossi,
'Opið
Opið
Opið
mán.-miðv. 9-18,^
fimmtud. 9-20,
föstud.9-19,
og laugard. 9-14.
sími 482-1455
fax 482-2898
Litli - Bergþór 13