Litli Bergþór - 01.07.1997, Blaðsíða 25
farvegi Sandár og út í Hvítá í þeim mæli, að neðri foss
Gullfoss hvarf alveg.
Það er þó hæpið sem fram var haldið, að gljúfrið við
Hagavatn og Nýifoss.
Leynifoss hafi ekki verið til áður og alfarið grafizt við
þetta hlaup. Trúlegra er að sagan hafi endurtekið sig og
að útfall Hagavatns hafi einhvemtíma áður orðið um
þennan slakka.
Jökullinn hélt áfram að hopa unz 200-300 m voru
orðnir frá vatninu upp að jökulröndinni. En eftir
kuldaskeiðið sem hófst hér um 1967 og náði hámarki á
kaldasta ári aldarinnar, 1979, hljóp Eystri-
Hagafellsjökullinn fram á nýjan leik, en náði aðeins niður
að vatnsborðinu. Þar hefur jökulsporðurinn verið á
síðustu ámm, ýmist að ganga fram eða hopa. Síðastliðið
sumar vantaði örlítið á að gengt væri milli vatns og
jökuls, en þar hefur þá trúlega verið sandbleyta og ófært.
Heimildir em um fimm jökulhlaup úr Hagavatni:
1708, 1884, 1902, 1929 og 1939. Tvö þau síðustu vom
stærst. Þessi jökuhlaup urðu þegar jökulstíflur í skörðum
Brekknafjallanna brustu og afrennslið fluttist í lægri
farveg. Vatnsborð Hagavatns var um tíma 22m hærra en
það er nú , en þegar jökullinn hopaði frá skarðinu við
Leynifoss 1929, lækkaði vatnsborðið um 10 m og
víðáttumiklar leirur komu upp. Fyrir því em heimildir
bænda sem smöluðu þetta land, að skömmu síðar hafi
byrjað uppblástur inn við Breknafjöll, en sá
uppblástursgeiri nær nú á ská yfir allt Innhraunið, fram í
Sjónarhóla og yfir á hlíð Sandfells.
Til viðbótar komu upp stórar leirur eftir hlaupið 1939,
enda minnast heimamenn þess, að á ámnum eftir 1940
stóð mökkurinn eins og veggur þegar þomaði með
norðanátt á vorin og að sá mökkur náði inn að Hagavatni.
Það áfok eyddi að stórum hluta því sem eftir var af
gróðurlendi á Haukadalsheiði; m.a. eyddist blaut mýri,
Stóramýri, þar sem áður hafði verið aflað heyja.
Á ámnum 1929-1939 þótti Leynifoss bera nafn með
rentu og sást ekki fyrr en að honum var komið. Mörgum
þótti gott til þess að hugsa að Leynifoss yrði til aftur
eftir hækkun vatnsborðs Hagavatns með stíflunni.
Hundrað metra háir fossar em ekki á hverju strái, en
þarna getur augljóslega orðið til ferðamannastaður, sem
mundi draga til sín fjölda ferðamanna. Ferðamannastaðir
eru auðlind í nútímanum; jafnvel tilbúnir
ferðamannastaðir eins og Bláa lónið. Við Leynifoss hefði
ekki þurft að gera neitt annað en að styrkja með
steinsteypu móbergið á þröskuldinum, sem fossinn fellur
fram af. Frá fossbrúninni er tilkomumikið útsýni yfir
umhverfi Hagavatns og ekki er síður eftirminnilegt að
gægjast niður og sjá þetta svarta gímald, sem Leynifoss
hefur grafið. Áskilið var frá hendi skipulagsstjóra, að
göngubrú yrði gerð ofan við fossbrúnina, sem hlaut að
teljast nauðsynleg ráðstöfun með tilliti til þess að opna
gönguleiðir í báðar áttir.
Hagavatn og Eystri-Hagafellsjökull.
Stóra-Jarlhetta í baksýn.
Ungar jarðmyndanir
Brekknafjöllin mynda þá kvos sem Hagavatn stendur
í; án þeirra hefði aldrei orðið neitt vatn þarna. Þetta eru
móbergsfjöll og sýnilega á gossprungu, því þau mynda
beina röð við Högnhöfða og Kálfstinda vestan
Lambahraunsdyngjunnar. Brekknafjöll eru nefndt eftir
Buðlungabrekkum, grasivöxnum brekkum sunnanmegin.
Framhald þeirra heldur áfram inn í jökul, en lítið eitt
framar hefur síðan gosið á annarri sprungu og þar hafa
Jarlhettur myndast. Þetta eru ungar jarðmyndanir; hafa
átt sér stað á síðasta jökulskeiði ísaldarinnar, sem lauk
fyrir um 10 þúsund árum. Þama hefur gosið undir
þykkum ísskildi jökulsins og aðeins náð að myndast
móbergshryggir. Annarsstaðar í næsta nágrenni náði gos
uppúr jöklinum og hlóð þar stapann Hlöðufell. Þessi fjöll
eru öll með hvössum brúnum, gagnstætt ávölum línum
eldri fjalla, þar sem farg ísaldarjökuls mýkti allar
misfellur.
Brekknafjöllin við Hagavatn ekki hvassbrýnd, heldur
jökulsorfin mjög, einkum að norðanverðu, bæði eftir
síðasta jökulskeið ísaldarinnar og að einhverju leyti eftir
Langjökul, sem hefur oftar en einu sinni lagst yfir þau.
Fyrir aðeins 3.500 árum gerðist það, að yngsta
jarðmyndunin girti fyrir þann vatnshalla sem kann að
hafa verið frá svæðinu við Hagavatn til vesturs. Það var
gosið í Eldborgum og tilkoma Lambahraunsdyngjunnar.
Litli - Bergþór 25