Litli Bergþór - 01.04.1999, Blaðsíða 4
Formannsspjall
Þar sem þessi pistill erfastur liður í Litla-Bergþóri er ég semformaður Ungmennafélagsins
tilneyddur að skrifa nokkrar línur þó pennafœrni sé ekki mín sterkasta hlið. Það er álit mitt að hér eigi að
skrifa um það sem við stefnum að og þá væntanleg markmið með starfinu íframtíðinni. Ætla ég að nefna
nokkra punkta þessu að lútandi.
íþróttir
Það hefur ekki farið framhjá neinum opnun og
nýting nýs íþróttahúss í Reykholti. Vil ég óska öllum
Biskupstungnamönnum til hamingju með frábœrt hús sem
gerir alla íþróttastarfsemi auðveldari. Einnig gefur það
mikla möguleika, ekki síst til að auka fjölbreytnina á
íþróttagreinum sem hœgt er að iðka fyrir fleiri og breiðari
aldurshóp. Nú, á ári aldraðra, œttum við að huga að því
hvað er hœgt að gera fyrirþann aldurshóp. Þá á ég við í
sambandi við íþróttir og eða aðra líkamsþjálfun, en kannski
einnig hvað elsti aldurs hópurinn getur gertfyrir okkur hin.
Því öll getum við lœrt afhvert öðru. I vetur hafa verið
troðin skíðaspor í Haukadalsskógi og verður því haldið
áfram meðan snjór leyfir. Skíðaíþróttin hefur ekki verið
stór þáttur hér á okkar svœði en þó er óvíðafegurra útivistarsvœði en í Haukadal. Einnig er þetta íþróttfyrir unga sem
aldna. Þar sem útivist og holl hreyfing fara saman ífallegu umhverfi hvet ég ykkur Tungnamenn að nýta ykkur þetta í
auknu mæli. Einnig vil ég hvetja ykkur foreldrar, forráðarmenn og aðra áhugasama um að kynna ykkurþað sem veríð
er að gera í íþróttamiðstöðinni og verið óhrœdd við að spyrja þá sem sjá um einstakar uppákomur og œfingar um það
sem þið viljið vita. Nú hafa hafist œfingar á íþróttum sem ekki hafa verið stundaðar liér áður s.s. Jiu - Jitsu
sjálfsvarnaríþróttin og fleira. Einnig vœri ágœtt að heyrafrá ykkur hvort það vœri eitthvað sem þið vilduð stunda en
ekki er boðið uppá.
Skógrækt
Skógrœkt höfum við stundað í Ungmennafélaginu langa tíð og vonandi verður svo áfram. Nú höfum viðfengið
stóran ogfallegan reit afhentan afSigurði Þorsteinssyni á Heiði. Vœri það vel effélagar gœtu rœktað þar
myndarlegan skóg á komandi árum og áratugum. Það hefur ekkifarið mikiðfyrir skógrœktardeildinni á síðustu árum
en það hafa margir rœtt við mig um störfhennar og framtíðarmarkmið. Því vil ég hvetja ykkur sem áhuga hafið á
skógrœkt og málefnum skógrœktardeildar að sýna áhuga í verki og efla þessa deild okkar með ykkar framlagi. Því
fleiri sem deila verkunum því auðveldari verða þau og þetta á við um alla starfsemi félagsins. Hérnafyrr í pistlinum
nefndi ég Haukadalsskóginn, fegurð hans og notagildi. Það vœri ánœgjulegt efvið gœtum komið uppfieiri slíkum
perlum hér í sveit með jafn gott og mikið útivistargildi. En það er ekki nóg bara að pota niður hríslum á víð og dreif,
það þarfað hlúa að skóginum. A ég þar við grisjun, klippafrá kjarrið þar sem þess erþörf, og áburðargjöf. Við viljum
geta notið skógarins með því að ganga um hann hvort heldur er á skíðum eða tveim jafnfljótum, geta sest niður í rjóðri
ein eða með fleirum og séð gróðurinn dafna.
Félagsmál
Félagsstaifsemi, eins og Ungmennafélagið er með,
gengur ekki án fjármagns það vita allir. En hvaðan á
fjármagnið að koma? Argjaldið, sem er nú ekki há
upphœð, œtti hverfélagi að eiga auðvelt með að greiða.
Hvet ég ykkur, sem viljið okkur vel og eruð félagar, að
gera skil á árgjaldinu og einnig eldri skuldum. Það er
okkur mikilvœgt að þetta skili sér inn svo að hœgt sé að
sinna þeim verkefnum sem þið viljið að félagið sinni.
Einnig vil ég minna á getraunanúmer félagsins sem er 803.
Hvet ég fótbolta og getspekinga að nota það þegar spilað
er í 1 X 2 því þar með fer hluti afverði seðilsins beint til
félagsins.
Jœja, þá hef ég komið inná það helsta sem mér
liggur á hjarta þetta skiptið. Er það von mín að umrœðan um félags-, íþrótta- og áhugamál mœtti halda áfram og vera
opin, almenn og jákvœð. Þvíþað er keppikefli okkar að sem flestir (helst allir) finni eitthvað við sitt hœfi innan okkar
félags og þvíþurfum við að heyra frá ykkur hvað þið viljið.
Magnús Asbjörnsson
Skíðaganga í Haukadal.
Litli - Bergþór 4