Litli Bergþór - 01.04.1999, Blaðsíða 8

Litli Bergþór - 01.04.1999, Blaðsíða 8
Hreppsnefndarfréttir rauntölum frá 1998 og eru því notaðar rauntölurtölur frá 1997 og áætlun ársins 1998, munu þær fylgja með í gögnum til hreppsnefndar. Einnig hefur sveitarstjóri stuðst við þær tölur sem fyrir liggja vegna fyrstu 10 mánaða ársins 1998. Unnið verður að því að ljúka uppgjöri vegna síðasta árs eins fljótt og kostur er, en þó má áætla að síðari umræða fjárhagsáætlunar hreppsnefndar í febrúar þyrfti að verða um tveim vikum síðar en áætlað er eða um 23. febrúar svo vel fari. 1. fundur hreppsnefndar 19. janúar 1999. Kynning á lokaskýrslu Geysisnefndar, Gísli Einarsson kynnir. Gísli las erindisbréf nefndar sem felur í sér friðun á Geysi og umhverfi hans. Fundir nefndarinnar voru haldnir bæði í Reykjavík og við Geysi. Lagt er til af nefndinni að ríkið kaupi eignarhluta landeiganda og einnig að íbúðareigendum við Geysi og bæir í nágrenni svæðisins fái tryggt heitt vatn til afnota. Fjármagn til þess að gera grunnrannsóknir vegna hitaveitu verða 2-3 milljónir króna. Einnig er lagt til að votlendi svæðisins verði friðað. Nefndin leggur til gjaldtöku af svæðinu til að fjármagna framkvæmdir og viðhald svæðisins. Nefndin hefur nú skilað af sér til ráðherra og framkvæmdaþáttur á niðurstöðu nefndarinnar er því hjá honum. Hreppsnefnd Biskupstungnahrepps vill í framhaldi af þessu senda Umhverfismálaráðherra eftirfarandi bókun: Hreppsnefnd Biskupstungnahrepps fagnar þeirri vinnu sem ráðherra hefur lagt í vinnu að framtíðarskipulagi fyrir Geysissvæðið, Biskupstungnahreppi. Það er eindregin ósk hreppsnefndar að áframhaldandi vinnu samkvæmt niðurstöðu nefndarinnar verði haldið áfram. Ársyfirlit ferðamálafulltrúa fyrir 1998 kynnt af ferðamálafulltrúa uppsveita Árnessýslu, Ásborgu Arnþórsdóttur. Unnið er eftir stefnumótunarvinnu sem gerð var af verkefnastjórn í ferðaþjónustu uppsveitanna. Veikasti hluti ferðaþjónustunar á svæðinu er markaðssetning og því nauðsynlegt að styrkja þann þátt. Einnig þarf að auka menningarþáttinn og tengja áhugaverða staði betur saman með gagnkvæmri kynningu. Fjárhagsáætlun Biskupstungnahrepps fyrir árið 1999 kynnt. Formaður hreppsráðs Margeir Ingólfsson og sveitarstjóri Ragnar Sær Ragnarsson kynntu drög að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins Fram kom að skatttekjur eru áætlaðar 96.385.000. Rekstur málaflokka kr. 72.913.000,-, afborgun lána, vextir og verðbætur 19.471.000,-. Rekstrarafgangur til framkvæmda verður kr. 4.130.000,-. Skipulagsmál a) Lokadrög að deiliskipulagi fyrir Laugarás og Reykholt. b) Deiliskipulag á frístundabyggð í landi Miðhúsa við Hrútá. c) Deiliskipulag á frístundabyggð í Holti í landi Neðra-Dals ehf Litli - Bergþór 8 ------------------------- d) Deiliskipulag á frístundabyggð „Að Koðralæk“í landi Holtakota. Deiliskipulag á íbúðarhúsabyggð, sumarhús og hesthúsum í landi Stóra- Fljóts. Geirharður Þorsteinsson kom á fundinn og sagði frá hugmundum sínum um að byggja upp sumarhús auk íbúðarhúsa á landsvæði sem hann á í Reykholti. Sveinn sagði frá hugmyndum vinnuhóps í skipulagsmálum og túlkun sinni um að Reykholt verði þéttbýli og þar verði ekki sumarhús. Hreppsnefnd hafnar ofangreindri tillögu að skipulagi og samþykkir að þarna verði eingöngu íbúðabyggð, eins og núverandi skipulag gerir ráð fyrir. Hreppsráðsfundur 16. febrúar 1999. Bréf frá stjórn Hitaveitu Reykholts, um samstarf eða sameiningu við hitaveitu Laugaráss. Hreppsráð fagnar framkomnu bréfi og telur að ráða þurfi ráðgjafa til að meta hagræði þess að sameina hitaveiturnar. Sveitarstjóri sjái um að boða stjórnir hitaveitnanna og að fylgja eftir framgangi málsins. Erindi Hrossaræktarfélags Biskupstungna um að nýta Hólahaga undir hóflega beit fyrir hross og halda stóðréttir í Tungnaréttum í september ár hvert. Hreppsráði líst vel á hugmyndina en telur rétt að rætt sé við fjallskilanefnd og Landgræðslu ríkisins um afnot Hólahaga fyrir takmarkaðan fjölda hrossa. Bréf frá Skipulagsstofnun vegna rafstöðvar í landi Brekku, vegna Hrútár. Náttúruvernd Rrkisins hefur sent frá sér athugasemd. Hreppsráð vísar erindinu til afgreiðslu hreppsnefndar. Aðgengi að Hvítá í Biskupstungum vegna raft- siglinga. Hreppsráð fagnar öllum nýjum verkefnum í ferðaþjónustu. Hreppsráð vill ítreka að við allar framkvæmdir á svæðinu þarf að fara eftir ákvæðum byggingar-og skipulagsmála. Erindi frá Margréti Baldursdóttur og Sigurlaugu Angatýsdóttur um að huga að eflingu félagsstarfs aldraðra. Hreppsráð leggur til í tilefni af ári aldraðra að styrkja félagsstarf eldriborgara um krónur 100.000. Fjármagninu verði ráðstafað í samráði við Félag eldri borgara. Hreppsráð bendir á möguleika á að nýta Iþróttamiðstöð Biskupstungna. íbúum sveitarfélagsins 67 ára og eldri er einnig heimilt að nýta sundlaugina okkar án endurgjalds. Bent er á bréf frá íþróttasambandi Islands, ISÍ um mikilvægi íþrótta fyrir aldraða. Tveir fundir voru haldnir um skipulagsmál 4. febrúar s.l. í Reykholti og Laugarási. Almenn ánægja með skipulagsdrögin sem verða nánar kynnt á hreppsnefndarfundi áður en þau verða auglýst. Einu athugasemdimar sem fram hafa komið eru vegna tjaldstæða. Beiðni Skógræktar Ríkisins um fjárstuðning við minnisvarða um Hákon Bjarnason fyrrverandi skógræktarstjóra. Minnisvarðinn á að vera í skógræktinni í Haukadal. Hreppsráð lýsir yfir ánægju með uppbyggingu skógræktar í Haukadal og samþykkir 40.000. króna framlag vegna þessa verkefnis.

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.