Litli Bergþór - 01.04.1999, Blaðsíða 25

Litli Bergþór - 01.04.1999, Blaðsíða 25
Frá íþróttadeild U.M.F.B. Mikil gróska er í íþróttastarfinu um þessar mundir, að sjálfsögðu, liggur manni við að segja, því það væri nú lélegt ef ekki væri mikill og aukinn áhugi með þetta nýja, glæsilega íþróttahús. Iþróttadeildin stendur fyrir ýmis konar æfingum fyrir börn og unglinga eins og venjulega. Eins og við var að búast með auknum fjölda íþróttagreina þá dettur niður áhugi á sumu þó hann rjúki upp á öðru. Við þurftum að hætta með borðtennisæfingar íþróttamenn ársins. 28. febr. var aðalfundur íþróttadeildar. í deildina gengu 16 nýjir félagar. Kosið var í stjórn og 5 nefndir. Formaður sundnefndar er Perla Smáradóttir, knattspyrnunefndar er Axel Sæland, körfuknattleiksnefndar er Guðrún Ólafsdóttir, borðtennisnefndar er Þórður Halldórsson og formaður Sigurlið Umf Bisk á borðtennismóti HSK í Reykholti í lokfebrúar s.l. vegna dræmrar þátttöku og var það ekki mjög ánægjulegt, eftir að hafa fyrir örfáum árum, átt nokkra landsliðsmenn og verið í fremstu röð innan HSK um nokkurra ára skeið. Við urðum t.d. HSK meistarar núna 20. febr. sl. En þetta er gangurinn í þessu. Mjög mikill áhugi er meðal yngri krakkanna á frjálsum íþróttum. Þar eru 42 krakkar á æfingum a.m.l. úr 1.-7. bekk sem er gífurlega hátt hlutfall og af þeim 90 börnum sem eru í skólanum þá eru 83 í einhverjum íþróttum og mörg í fleiri en einni grein. Við erum einnig með eina æfingu á viku í badminton, fótbolta og sundi. Og tvær æfingar á viku í körfubolta og jiu-jitsu. Nú nýlega skrifuðu forystumenn íþróttafélaga innan HSK undir samning við frjálsíþróttaráð HSK, þar sem við greiðum ákveðna upphæð til ráðsins sem sér síðan um frjálsíþróttaþjálfun 15-22ára en á þeim aldri hafa unglingarnir einmitt dottið út af æfingunum. Þetta starf er enn ómótað en vonandi getur það orðið líka í formi aðstoðar við æfingar þeirra yngri á einhvern hátt. Eins og staðan er í dag eigum við enga krakka á þessum aldri sem æfa frjálsar. Asa hoifir á. frjálsíþróttanefndar er Rut Guðmundsdóttir. Stjórn skipa; Sigríður Jónína Sigurfinnsdóttir formaður, Matthildur Róbertsdóttir gjaldkeri og Margrét Sverrisdóttir ritari, en úr stjórn gengu Guðrún Sveinsdóttir gjaldkeri og Margrét Bóasdóttir ritari. A fundinum voru tilnefndir íþróttamenn ársins, og eru þeir þessir: Körfuboltamaður er Rúnar Bjarnason, borðtennismaður er Georg Hilmarsson, frjálsíþrótta,- fótbolta og íþróttamaður ársins er Jóhann Pétur Jensson, og sundmaður og íþróttakona ársins er Fríða Helgadóttir. Ef einhver hefur hug á að fræðast meira um starfið á sl. ári er hægt að nálgast ársskýrslur hjá undirritaðri, það eru nokkrar eftir. Núna eftir áramótin hækkuðum við æfingagjöld talsvert frá því sem verið hefur. Vonandi skilar það sér áfram í íþróttastarfinu að því leiti að stjórn þurfi nú ekki að eyða eins mikilli orku í fjáraflanir til að halda starfinu gangandi heldur geti einbeitt sér að því að sjá betur um íþróttastarfið sjálft. Framundan er nú Þriggjafélagamótið innanhúss, milli Umf. Laugdæla, Umf. Bisk. og Umf. Hvatar en það er alltaf haldið á Sumardaginn fyrsta, að þessu sinni sjáum við um það. Okkur vantar oft keppendur í „13-15 ára“ og „ 16 ára og eldri“ flokkana. Ef einhver hefur áhuga þá endilega hafðu samband!!! Það væri mjög gaman ef við gætum unnið á þessu fyrsta frjálsíþróttamóti í nýja húsinu. Með íþróttakveðju, Sigríður J. Sigurfinnsdóttir. Litli - Bergþór 25

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.