Litli Bergþór - 01.04.1999, Blaðsíða 11

Litli Bergþór - 01.04.1999, Blaðsíða 11
Minni kvenna Höf: Sigurður Sigurðarson, Skálholti Flutt á Þorrablóti 1999. Það er annars einkennnilegur siður að láta mæla fyrir minni kvenna, og alltaf verður það erfiðara og erfiðara fyrir karlmann að gera það. Sjálfur hef ég forðast það eins og heitan eldinn að taka slíkt að mér, en stend nú samt hér í þessum sporum eins og af einhverri þegnskyldu. Ég tel mér trú um að þetta hafi verið auðveldara fyrir svo sem fimmtíu árum þegar verkaskipting karla og kvenna var fyrir hendi og nokkuð skýr. En nú er öldin önnur. Hér ber væntanlega að tala um norrænar konur, en elsta heimild urn þær er hjá Rómverska sagnaritaranum Tacitusi, sem fullyrðir að norrænar konur búi yfir yfirskilvitlegum hæfileikum. Ef til vill væri skynsamlegast að fara eins að og Tacitus og segja bara eitthvað nógu óskýrt og óskýranlegt um konurnar og láta þar við sitja. Ég man eftir því í æsku að hafa lært utan að tilsvar húsfreyjunnar á Bergþórshvoli er henni var boðið að ganga úr brennunni og sagði að eitt skyldi yfir þau Njál ganga. Ég man líka eftir því að þessi orð átti maður að taka afar alvarlega og virða þá tryggð og samstöðu við eiginmanninn sem orðin tjá. Auðvitað þykir okkur karlmönnum vænt um slrka afstöðu kvenna, getum ekki að því gert. Hún hefur svo birst í bókmenntum okkar og sagnageymd í margvíslegum myndum. Auðvitað er það sama afstaðan sem kemur fram í orðum konu nokkurrar niður í Flóa á síðustu öld. Hún var sambýliskona bónda nokkurs og þótti afar vænt um hann. Sveitungar sem voru á ferð sögðu henni að nú væri tiltekin stúlka ófrísk og að hún kenndi þessum sama manni barnið. Þá sagði konan: „Ja, hann Jón minn hefur einhvem tíman hengt sig fyrir minna en að honum væri kennt barn“. Hún var heldur ekki að gera sig til fyrir öðrum karlmönnum og sagðist ekkert skilja í þessum ungu konum sem væru farnar að skipta hárinu skakkt. „Ég skipti nú bara eins og Guð hefur skapað það og skipti beint“. Síðan ég fyrst heyrði um þessar tvær konur, hef ég orðið þess var, að fólk vill draga í efa að Bergþóra hafi komið góðu einu til leiðar í Njálu og það hlær að bláheiðarlegri afstöðu síðarnefndu konunnar. Já, hvernig á ég að tala um konur og hvað veit ég um þær? Menn hafa farið flatt á því að reyna að útskýra allt um konur og jafnvel orðið ráðþrota. Það sýnir t.d. sagan af vestfirsku stúlkunni sem giftist manni hér sunnanlands. Eftir nokkra sambúð kom eðlilega að því að hún yrði léttari. Tengdafaðir hennar fór að sækja ljósmóðurina og í þeirri ferð kom hann við á bæ í nágrenninu þar sem hann gerði uppskátt um erindi sitt. Viku síðar kom hann við á sama bæ og var enn að sækja ljósmóðurina. Hann var þá spurður hvort ekki væri allt í lagi hjá tengdadótturinni. „Jú það held ég“, svaraði maðurinn, „annars er hún að vestan og við kunnum líklega ekki á hana“. Gamall maður vestur á Snæfellsnesi var spurður að því úr hvaða veikindum konan hans hefði látist. „Það veit ég ekki“, var svarið, „nú bara úr almennum aumingjaskap held ég“. I þessum vangaveltum mínum kemur mér í hug vísa eftir Stefán Olafsson í Vallanesi, sem var eitt af höfuðskáldum Islendinga á sautjándu öld, en hún er svona. Vandfarið er með vænan grip, votta ég þá með sanni, siðuga konu, sjálegt skip, og samviskuna í manni. Samviskan er sannarlega einn okkar vænsti gripur, því að hún skilur okkur meðal annars frá dýrum, en hún er vandmeðfarin og fyrr en varir bítur hún okkur og slær og lætur engin rangindi í friði, þó að í bili virðist þau í hag koma. Það er líka vandfarið með sjálegt skip og mikið í húfi að rétt sé stýrt og ekki sofnað á verðinum. Þetta þrennt, siðug kona, sjálegt skip og sjálf samviskan eiga í huga skáldsins nokkuð sameiginlegt. Samviskan áminnir oft á óvæntan hátt og hittir okkur þar sem við erum veikastir fyrir. Skipið kann að ólmast í höndum manna og taka jafnvel stjórnina af þeim þegar minnst varir. Konan kemur líka sífellt á óvart og hún er vandmeðfarin því að hún lætur ekki endilega að stjórn karla samkvæmt eðli sínu, og vilji hún taka á okkur, gerir hún það þar sem við síst komum vörnum við. Allt þetta þrennt er svo með þeim hætti að okkur körlum er unnt að elska það og virða í senn. Enginn vill vera kallaður samviskulaus, því að þá er hann talinn marklaus maður. Öll þekkjum við til aðdáunar og elsku sægarpanna á skipum sínum og sannarlega metum við það mikils að komast leiðar sinnar. Um hæfileika karla til að elska og virða konur þarf ekki að efast né hvem þátt það á í lífshamingju þeirra. Um það allt ætla ég ekki að fjölyrða en geri þessi orð séra Stefán að niðurstöðu máls míns hér og meginefni: Vandfarið er með vænan grip. votta ég þá með sanni, siðuga konu, sjálegt skip, og samviskuna í manni. Ekki ætla ég svo að hafa þau orð fleiri en tel að ég hafi komist í gegnum þetta án þess að þið hafið fundið í því einhverjar sendingar til konu minnar, og þá er ég sloppinn. S.S. A þorrablóti 1999. Litli - Bergþór 11

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.