Litli Bergþór - 01.04.1999, Blaðsíða 12
D anmerkurferð
Nemendur 9. og 10.
bekkjar Reykholtsskóla í
Biskupstungum fóru til
Holbæk í Danmörku
dagana 2.-13. des 1998.
Þessi ferð var farin í
tengslum við
nemendasamskipti sem
hófust fyrr á árinu.
Danirnir heimsóttu
okkur í Reykholtsskóla í
haust dagana 6.-14.
september.
Óhætt er að fullyrða
að ferðin var mjög
vandlega skipulögð og
undirbúin bæði hér heima
fyrir og í Danmörku.
Höfðu gestgjafar okkai' þar ytra samband við okkur
meðan á undirbúninginum stóð. Var undirbúningur okkar
hér í því fólginn að lesa efni sem okkur var sent frá
Danmörku um sitthvað sem við áttum að sjá fyrir okkur
þar, og móta þannig jákvætt hugarfar nemendanna til
þeirra verkefna sem framundan voru.
Skólastjóri og tveir foreldrar önnuðust fararstjórn en
nemendumir sem þátt tóku í ferðinni voru 15 að tölu eftir
að einn hafði forfallast vegna slyss. Þegar lagt var af stað
höfðu allir þann góða ásetning að láta allt ganga sem best
frá upphafi ferðar.
Tekið var á móti okkur á flugvellinum og séð um
ferðir okkar af gestgjöfunum þangað til haldið var heim.
Einn kennaranna við Stenhus Kostskole var með okkur
allan tímann. Hún heitir Birgitte Steen og konr hún með
nemendum sínum hingað í september. Birgitte kennir
tungumál, trúarbragðafræði og sögu í skóla sínum og
veittist henni létt að gæða sögustaðina lífi þannig að
börnin höfðu gagn og gaman af.
Hver dagur hafði skipulagða dagskrá frá því kl. 7 að
morgni og fram að háttatíma. Bjuggu íslensku
nemendurnir á heimilum nemenda í Steenhus Kostskole.
Tímanum var varið til skólagöngu, skoðunarferða,
ferðalaga og gönguferða en inn á milli voru frjálsar
stundir og ráð fyrir því gert að nemendurnir hefðu tóm til
að skrá niður og vinna úr verkefnum sem fyrir lá að gera
hvern dag í ferðinni.
Steenhus Kostskole í Holbæk er gamalgróin
stofnun, sem í fyrstunnr var heimavistarskóli fyrir drengi
en síðar fyrir bæði kyn. Er þetta einkarekinn skóli. í dag
starfar hann bæði sem heimavistarskóli fyrir þá sem þess
óska en mikill meirihluti nemenda nú fer heim daglega.
Þarna er frekar gróinn kennarahópur og reglur fast
mótaðar. Kennslan og
árangur hennar er
aðalatriðið, enda eru greidd
skólagjöld af foreldrum eða
forráðamönnum barnanna
sem þarna dvelja.
Næsti byggðakjarni
við Holbæk er Hróarskelda
og þar var dvalið heilan dag
undir góðri leiðsögn.
Sögukennari skólans tók á
móti okkur við dómkirkjuna
og greindi þar vel frá sögu
hennar og uppbyggingu og
því sem tengist þessum
merka sögustað í þúsund ár.
I Hróarskeldu er víkingasafn
og eyddum við mestum tíma
þar í samræmi við yfirskrift ferðarinnar. Þar fengum við
vandaða leiðsögn og sáum meðal annars uppbúið skip
víkinga og útlistanir á því hvernig komið var fyrir
flutning eins og vistum og jafnvel húsdýrum og hvernig
daglegu lífi víkinganna var háttað eftir því sem vitað er.
Allt var þetta auðvitað mikil upplifun fyrir nemendurna
því að þeir hafa ekki fyiT fengið tækifæri til að sjá neitt
sem kemst í líkingu við þetta til útskýringar á lífi og
menningu víkinga. Einnig opnaði þetta vitund þeirra um
að heimur víkingamenningarinnar er víðari en
íslendingar gjaman ímynda sér því að okkur hættir til að
tengja víkinga fyrst og fremst við Noreg.
1 Odense skoðuðum við H.C. Andersen safnið og
járnbrautasafnið. I því sambandi má til gamans geta þess
að gestgjöfum okkar hafði ekki dottið í hug að láta okkur
ferðast með lest. Ur því var bætt og var það í fyrsta
skipti sem flest börnin komu í slrkt farartæki. A Sjálandi
sáum við Louisiana-safnið þar sem uppi var
nýlistasýning listamannsins Miro. í Rosenborgarhöll
sáum við krúnudjásnin og m.a. kórónur þeirra Kristjáns
4. og Kristjáns 5. sem svo mjög komu við sögu
Islendinga eftir siðaskiptin og raunar gafst þar gott
tækifæri til að minna á samband landanna á yfirráðatíma
Dana hér. I Tuse kirkju í næsta nágrenni Holbæk voru
sýnd og skýrð kalkmálverkin frá miðöldum sem Danir
eiga svo mikið af en sú kirkja er frá 12 öld.
Einn daginn var farið yfir Stórabeltisbrúna og í
þeirri ferð var lögð sérstök áhersla á að útskýra
landafræði Danmerkur og það hvernig þessi brú og
bættar samgöngur innan Danmerkur skipta nriklu máli í
að halda saman þeirri þjóðlegu menningarheild sem
landið hefur verið. Þá var ferðinni heitið til Koldinghus
þar sem við skoðuðum farandsýningu um uppgröftinn í
Ingólfur, Daníel, Berglind, Ævar, Osk, Ivar, Rúnar, Stefán,
Kristrún, Kristín, Svanhvít, Oskarf. aftan Eyrúnu, Elín,
Guðný (f aftan E). Ása, Björt og Arndís.
Litli - Bergþór 12