Litli Bergþór - 01.04.1999, Side 7

Litli Bergþór - 01.04.1999, Side 7
Hreppsnefndarfréttir en kaupandi Svana Einarsdóttir. Hreppsnefnd samþykkir að nýta ekki forkaupsréttar sinn. Til kynningar, erindi frá Gunnari Hafsteinssyni, virkjun/rafstöð í Hrútá. Að virkjuninni standa landeigendur jarðanna Brekku og Miðhúsa í Biskupstungnahreppi. Óskað er eftir því við hreppsnefnd að hún samþykki deiliskipulag að rafstöðinni. Hreppsnefnd samþykkir að óska eftir leyfi Skipulagsstofnunar til að auglýsa skipulagið. Hreppsnefnd gerir þann fyrirvara á samþykkt sinni að framkvæmdir verði utan aðalsumarleyfistíma, júní til ágúst. Við framkvæmdir verði tekið tillit til náttúru svæðisins og að frágangi vegna verkþátta verði lokið jafnóðum og framkvæmdum lýkur. Til kynningar erindi frá Byggðir og bú ehf. Erindið varðar heildarútgáfu á sögu ábúðar í Amessýslu. Óskað er eftir styrk sem nemur um 15% af heildar- kostnaði frá sveitarfélögunum í Arnessýslu. Samþykkt að vísa erindinu til fjárhagsáætlunar í janúar. a) Sorpeyðingargjald á fyrirtæki og lögbýli. Samþykkt er að sorpeyðingargjald á smáfyrirtæki og lögbýli verði krónur 10.000.- fyrir árið 1999. Stærri fyrirtæki greiði sama grunngjald eða krónur 10.000,-. Við það gjald bætist síðan kostnaður vegna gámaflutninga og innvegins sorps. Þetta gjald innheimtist eftirá í samræmi við fyrirliggjandi tölur um kostnað sveitarfélagsins. Þau fyrirtæki sem hafa verið að greiða þennan kostnað sjálf beint gefst áfram kostur á því. Stefnt er að því að bæta gámaaðstöðu sveitarfélagsins. Kynntar voru tillögur að erindisbréfl félagsmála- nefndar uppsveita Amessýslu og reglur um félagslega heimaþjónustu og fjárhagsaðstoð félagsmálanefndar. Sveini A. Sæland, oddvita, verði falið að undirrita erindisbréfið ef ekki koma fram athugasemdir fyrir 15. des. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands þakkar hreppsnefnd Biskupstungna fyrir samúð og hlýhug við andlát Guðrúnar Katrínar. Lagt fram til kynningar frístundarbyggð við Neðra-Dal. Hreppsráðsfundur 12. janúar 1999. Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt að tilraunastarf verði á Suðurlandi um meðferðarþjónustu að lokinni greiningu skólasálfræðings fyrir börn og unglinga. Fundargerð Sorpstöðvar Suðurlands frá 9. des. 1998 og hækkun á gjaldskrá Sorpstöðvar Suðurlands auk fjárhagsáætlunar. Gjaldskráin hækkar um 6% að meðaltali. Kynnt og staðfest. Fundargerðir stjórnar SASS 2. desember 1998 og 6. janúar 1999. Lagt er til að hækkun á gjaldi til SASS verði um 10% á árinu, eða fari í krónur 195 á íbúa. Árgjald fyrir Heilbrigðiseftirlit Suðurlands verði krónur 170 á íbúa. Auk þessa verður hækkun vegna þjónustugjalds á skólaskrifstofu 17,5%. Kynnt og staðfest. Bréf frá Gylfa Haraldssyni um skipulag hitaveitumála í sveitinni, dags. 9. des. 1998. Hreppsráð vill þakka Gylfa fyrir áhuga hans á þessu máli. Það fé sem sveitarstjóm hefur til framkvæmda hefur frekar farið til vatnsleitar og vatnsöflunar. Hreppsráð mun áfram leita hagkvæmra leiða til að hitaveita verði sem víðast. Kaupsamningur vegna Kistuholts 4, Reykholti (Kæribær). Kaupandi Gufuhlíð ehf seljandi Biskupstungnahreppur. Samþykkt af hreppsráði. Námsstefna um vatn sem auðlind. Hreppsráð samþykkir að greiða þátttökugjald fyrir einn aðila sem færi fyrir hönd sveitarfélagsins. Fundargerðir byggingarnefndar íþróttahúss dags. 4. og 8. janúar 1999. Rætt var um þóknun vegna starfa byggingamefndarmanna. Með tilliti til fjölda funda (40- 50 fundir) og annarra starfa hefur orðið að samkomulagi við sveitarstjóra að greiða Gunnari Sverrissyni og Kjartani Sveinssyni kr. 100.000.- hvomm vegna framlags þeirra til íþróttahúss. Fyrir fundinum liggur ósk þeirra um að gefa til íþróttahússins þessa upphæð til tækjakaupa í íþróttahús. Samþykkt að sveitarstjóri sendi byggingamefnd þakkarbréf þar sem þakkað er fyrir umrætt framlag og allt starf við byggingu íþróttahússins. Kynnt og staðfest. Málefni Náttúrustofu Suðurlands og Kirkjubæjar-stofu, bréf dags 4. janúar 1999. Hreppsráð leggur f Ég vil láta taka þátt í til við hreppsnefnd ( Náttúrustofu. Biskupstungna að sveitarfélagið taki ekki þátt í ofangreindu verkefnr Bréf aðstoðarborgarstjóra Barr í Frakklandi og óskir um að efla vináttu milli sveitarfélaganna. Sveitarstjóra falið að þakka hlý orð og skila kveðju hreppsnefndar og lýsa áhuga á að viðhalda góðum A' tengslum við Barr, Frakklandi. Beiðni Ferðaklúbbsins 4x4 um framlengingu á leigusamningiþeirraáArbúðum. Samþykktað sveitarstjóri annist endurnýjun samningsins í samráði \J við verkstjóra sveitarfélagsins. Samningurinn verður lagður fyrir hreppsráð að því loknu. Bréf frá formanni fjallskilanefndar Eiríki Jónssyni um bætta aðstöðu í Svartárbotnum. Endanleg ákvörðun um framtíðarstaðsetningu og aðstöðu Svartárbotna- skálans verður tekin að vori er snjóa leysir. Afram er stefnt að því að bæta aðstöðu á afréttinum fyrir gangna- og ferðamenn. Til þess að vinna að þessu markmiði þá skulu þær tekjur sem koma af afréttinum verða notaðar til uppbyggingar þar. Hreppsráðsfundur 14. janúar 1999. Tekið var fyrir uppgjör byggingafulltrúa uppsveita Árnessýslu vegna síðasta árs. Kynnt og staðfest. Tekin var fyrir fjárhagsáætlun Biskupstungna- hrepps fyrir árið 1999 og rædd ítarlega. Lokið var við að fara yfir alla gjalda og tekjulið áætlunarinnar. Vegna þess að umræðum um fjárhagsáætlun vegna ársins hefur verið flýtt, er ekki hægt að byggja á Litli - Bergþór 7

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.