Litli Bergþór - 01.04.1999, Page 27

Litli Bergþór - 01.04.1999, Page 27
Tjörvamál frh... 1900. Ég veit ekki hvaða ár Tjörvi missti Amleifi konu sína. Eftir að hann varð ekkjumaður bjó hann lengi með ráðskonu, fyrst að Straumi og svo í svonefndum Tjörvabæ í Hafnarfirði. Hún bjó í þessum bæ eftir fráfall Tjörva allt til síns endadægurs. Konu þessa þekkt ég allvel þar sem ég vandi komur mínar til Tjörva um ára bil meðan ég var á bamsaldri. Ég mun segja frá henni eitthvað nánar áður en ég lýk við ritgerð þessa. Fyrr á tíð þótti Straumur góð bújörð. Aður fylgdi jörðinni allmargar hjáleigur sem áttu þar að mestu óskipt land með heimajörðinni en voru a.m.k. sumar í séreign ábúenda seinni árin sem þær voru 1 byggð. Þær hétu: Litli-Lambhagi, Stóri- Guðjón Guðmundsson Tjörvason. mér aldrei að skapi. Aður en Tjörvi gekk í hjónaband eignaðist hann son sem Guðjón var nefndur. Móðir þessa drengs hét Oddbjörg. Ekki veit ég með hve miklum dáleikum þessum Tjörvasyni var tekið þegar hann kom í þennan heim. Oftar en ekki reynist sú ánægja eitthvað blendin þegar „holubörn“ eiga í hlut. Hitt veit ég með vissu að enga lifandi afkomendur ætti Tjörvi ef Guðjón þessi hefði ekki komið til sögu í þessu efni. Mér er ekki kunnugt um hver afskipti Tjörva hefur haft af syni sínum á þeim árum sem drengur þessi óx úr grasi. En ljóst er af framvindu mála að Straumsbóndinn byggir syni sínum hluta Lambhagi, Gerði, Þorbjamarstaðir, Þýskabúð og Péturskot. Tjörvi þótti góður bóndi. Sauðfjárbúskapur mun hafa verið traustasta undirstaða búskapar í Hraununum. Vetrarbeit reyndist þar farsæl og öragg í flestum árum, bæði til fjalls og fjöru. Sölvareki á hausti og í vetrarbyrjun var árviss við Þórðarvík skammt frá Lambhagabæjum. Kvist- og lyngbeit ágæt upp um hraunlandið. A Reykjanesskaganum er oft æði úrkomusamt þá komu sauðkindinni oft til góða öll þau skútaskjól sem hraunlandið býður þar upp á. Við sunnanverðan Faxaflóa var stólað meira á sjávarfang en seinna varð. Aður hafa Hraunamenn efalítið stólað talsvert á sjávarafla sér til búdrýginda, þó trúi ég að Innnesjamenn hafi verið þeim aðsætnari á því sviði. Þetta má teljast fullkomlega eðlilegt þegar til þess er litið að Hraunabyggðin bauð upp á tiltölulega trausta afkomu af sauðfjárbúskap. I æsku lærði ég vísu sem mér þykir sennilegast að einhver Garðhverfingur hafi ort á leið á mið í fiskiróðri. Maður getur staðsett hagyrðinginn á fleytu sinni ekki fjarri landi utan við Óttarsstaði. Vísan er svona: Sólin er komin Keili á og Kotið lóna Hraunamennirnir gapa og góna er Gerðhverfinga sjá þeir róna. Ef Tjörvi hefir ekki flutst að Straumi fyrr en hann var kominn á sautjánda ár verður að teljast líklegt að hann hafi hafið sína sjómennsku frá Hafnarfirði eða úr Garðahverfi þar sem víst er að hann fæddist á Setbergi og flutti þaðan með móður sinni og fóstra að Straumi. Frá hinni einu og sönnu Straumsvík reri hann til fiskjar ásamt hjáleigubændunum. Straumsvík var lygn vogur sunnan við bæinn í Straumi, farsæll og öruggur lendingarstaður. En strax eftir að Álið varð málið, vilja flestir tala um Straumsvrk þegar maður kemur á Hellahraun sunnan við Hvaleyrarholt og suður að Óttarsstaðarauðamel. Orðfærislegur ofvöxtur á þessari lygnu og tæru vík er Þorbjörg Guðjóns dóttir um 18 ára. af eignarjörð sinni í þann mund að Guðjón staðfestir ráð sitt. Kona Guðjóns hét Þorbjörg Guðmundsdóttir frá Óttarsstöðum í Hraunum. Ég veit engin deili á Guðmundi þessum önnur en þau að hann var seinni maður Ragnheiðar húsfreyju á Óttarsstöðum og Þorbjörg var einkabarn þeirra. Ragnheiður var Hannesdóttir frá Tungu í Gaulverjabæjarhreppi. Hennar ættir víðar um Flóa og ofanvert Árnesþing. Styttra varð í búskap þessara ungu hjóna en til stóð, því konan deyr skyndilega, þá ný stigin upp af sæng eftir sinn fyrsta barnsburð. Þannig tvístraðist þessi fjölskylda. Litla stúlkan sem þessi ungu hjón eignuðust var látin heita Þorbjörg Stefanía, bar því nafn móður sinnar og hálfsystur föður síns, sem var Stefanía Guðlaug Tjörvadóttir, en hennar er getið hér að framan. Guðjón kemur Þorbjörgu litlu dóttur sinni í fóstur hjá ömmu hennar Ragnheiði Hannesdóttur á Óttarsstöðum. Hann hrökklast fljótlega frá búskap sínum í Straumi. Enn stóðu opnar dauðans dyr gagnvart afkomendum Tjörva, því Guðjón sonur hans er allur sex árum síðar, þá var Þorbjörg dóttir Þorbjörg með Ragnheiði hans á sjöunda ári. Hannesdóttur, ömmu sinni. Litli - Bergþór 27

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.