Litli Bergþór - 01.12.1999, Page 15
hross, leituðum kúnna, stundum langar leiðir, ókum út
skán, smöluðum fé, fórum á milli, urðum samferða í
réttir. Og sitthvað fleira dreif á daga okkar, og við urðum
vinir. Smám saman urðu stuttu fæturnir dæmalaust
hugþekkir, og höfuðið með augum hýru var svo gott að
strjúka og hjala við. Að sjálfsögðu voru fleiri hross á
bænum, sum miklu fegurri og frægri en Gráni, en ekkert
þeirra hafði lund hans né bestu kosti í jafn ríkum mæli
sem hann.
Nú eru gömlu traðimar óðum að gróa upp og
þrengjast, svo að þær væm varla færar hestvagni lengur.
Brattinn er þó samur. I hvert sinn, er ég kem á þær fomu
slóðir, sé ég Grána fyrir mér, brjótast upp brekkuna af
sama kappi og forðum, rymjandi og másandi eins og
grimmasta villidýr.
Eg man, að einu sinni tók mig sárt til Grána. Mér
þótti hann hart leikinn. Hann hafði farið í Veiðivatnaferð
og kom aftur illa skáldaður eftir mývarginn, - mátti segja,
að höfuð og háls og nári væm eitt logandi fleiður. Söm
var þó rósemi hans og æðruleysið eins. Og raunar var
hann hetjan úr ferðinni. Enginn hestur var honum þarfari
í slíkar ferðir, að sagt var, enda mun hann hafa farið þær
margar. Einn hesta var hann aldrei heftur, því að svo
hagspakur var hann, að hann hvarflaði aldrei frá
ferðamönnum né farangri, hvað sem aðrir hestar rásuðu
og hvemig sem vargurinn ólmaðist við vötnin.
Þolinmóður beið hann byrgðar sinnar og skilaði henni
heim fúsastur allra hesta.
Gráni kom ungur úr Þykkvabæ að Heysholti.
Héðan úr heimi fór hann sömu leið og flestir aðrir
heimilishestar. Það mun hafa verið haustið 1939, að við
urðum síðast samferða - út á veg, sem kallað var. Þar
Höfundur með fermingarbarni sínu í Haukadalskirkju.
urðu okkar krossgötur. Ég vissi, að ég mundi aldrei
framar í þessum heimi fá að stijúka feld hans né flipa, né
heldur nokkurn tíma fá að skyggnast í auga hans. Þar
varð kveðju stund, sem setti mark á sálina.
Ég held það hafi verið Gráni, sem kenndi mér, að
Guð mundi hafa skapað menn og hesta til samfélags og
gagnkvæmrar vináttu. Við töluðum margt um Guð, og
stundum hlustaði hann á samtöl mín við Guð. Oft hef ég
verið spurður að því, hvort ég tryði á upprisu dýranna.
Það geri ég víst og hef lrklega gert það, frá því við Gráni
skildum. En það var síra Bjami, sem gerði mig
staðfastan í þeirri trú, eitt sinn, er hann las fyrir og skýrði
orð Páls í áttunda kafla Rómverjabréfsins, orðin um þrá
skepnunnar og endurlausn hennar úr ánauð
forgengileikans.
T)ó|el
iU
Gleðilegjól!!
óskum við lesendum Litla-Bergþórs
iQEYSJR
Bláfellsbar
Sími 486 8915 fax 486 8715
/-------------------------N
Söluskálinn við Geysi
Sími 486 8935
Smáréttir minjagripir
Bensín og olíuvörur
Tjaldstæði - hjólhýsasvæði
Góðar veitingar
gisting,
svefnpokapláss
Bergþórsbar,
ný bjórstofa.
Ný glæsileg sundaðstaða.
Hestaleiga á staðnum.
góð þjóniLSta
Litli - Bergþór 15