Litli Bergþór - 01.12.1999, Blaðsíða 25

Litli Bergþór - 01.12.1999, Blaðsíða 25
Svo var lagt af stað til bæjar sem heitir Riquewier (Ríkvír). Þar var fólki sleppt lausu í nokkurn tíma í blíðskaparveðri og skoðað m.a. jólahús eitt mjög stórt og fallegt. Þar fékkst allt mögulegt til jólanna hvort sem þú vildir hafa þau rauð eða blá. Um kvöldið, fyrir tónleikana, var okkur boðið upp á hressingu í tjaldi við geðsjúkrahús bæjarins. Höfðu þá sumir á orði að líklega yrði tekinn feill á okkur og sjúklingunum. I tjaldinu voru þeir flottustu smáréttir sem við höfðum séð, í allskonar útfærslum og litatilbrigðum, og ekki skemmdi bragðið. Þessu skoluðum við niður með appelsínusafa eða hvítvíni. Og þá var komið að því að fínna sig til fyrir aðal tónleikaferðarinnar. Við fengum bara klukkutíma til að gera okkur fín, en skipulagningin var ótrúlega góð á „fjallahótelinu". Tónleikarnir voru haldnir í gamalli fallegri kirkju í Rouffach þar sem sungin voru kirkjuleg og veraldleg lög í bland við orgelverk, homablástur og síðast en ekki síst einsöngslög. Tónleikarnir tókust vel og Diddú söng sig inn í hjörtu viðstaddra eins og við mátti búast. Þarna var svo pressan og fengum við mjög góða dóma í blöðum bæjarins næsta dag. Eftir tónleikana var farið “heim í skógarsalinn” og þar Diddú. skálað í freyðivíni og skipst á sögum og söng fram eftir nóttu. Næsta morgun voru margir syfjaðir og hugðu á gott að sofa fram til hádegis. En það var ekki svefnsamt þennan morguninn því konurnar sem sáu um morgunmatinn voru örlítið geðstirðar og ráku bílstjórann hann Kalla til að ganga um berjandi pottlok með sleif, kallandi „Aufstehen“ sem útleggst lauslega „RÆS“. Síðan fór hann út í rútu og þeytti flautuna vel og lengi svo að allir myndu örugglega vakna. Slett úr klaufunum t.v. Helga María, Hófý, Diddú, Linda (aftar) Asa (framar) Iris. Elísabet var svo búin að undirbúa hádegisverð í Rouffach. Frakkar eru þekktir fyrir vægast sagt rólegar matarvenjur og í hádeginu fengum við margréttað eins og alltaf. Stóð hádegismáltíðin yfir í tvo og hálfan tíma og fannst mörgum nóg um. Við þurftum að bíða smáslund eftir Elísabetu og var tíminn þá bara notaður til að æfa úti á götu . Seinnipartinn var farið til bæjar sem heitir Colmar og skoðuðum við okkur þar um. Colmar er greinilega vinsæll ferðamannabær því margar verslanir voru með fullt af minjagripum sem minntu á héraðið og borgina. Um kvöldið var svo hinn margumtalaði Gala kvöldverður sem haldinn var í stórri höll í Rouffach. Höll þessi er alveg eins og ævintýrahöll en er nú hótel. Þar var í aðalrétt dádýrskjöt sem var með hinu margfræga villibráðarbragði og að sjálfsögðu Munster í eftirrétt. Þarna sungum við létt lög á milli rétta við góðar undirtektir og svo söng Diddú að sjálfsögðu og gerði stormandi lukku eins frjáls í fasi og hún er. Eins og áður hefur komið fram eru Frakkar frægir fyrir matargerðarlist og matarvenjur sínar, eins og sást á því að þegar síðasti rétturinn var borinn fram var komið vel fram yfir miðnætti. Þegar svo dansinn dunaði í höllinni gátu flestir ekki á sér setið að taka nokkra snúninga áður en haldið var heim í veiðihúsið. Laugardagsmorguninn var tekinn snemma því nú var Italía framundan. En nú skildu leiðir. Átta félagar okkar fóru fyrr heim og kvöddum við þau með söknuði í Rouffach. Þau dvöldu einn dag í Strassbourg, og er þar önnur saga sem inniheldur Halloween og froskalappir og skora ég á þau að koma með þá sögu síðar. Ferðin til Italíu gekk vel og vorum við komin á hótelið í Arco um sjöleytið um kvöldið, eftir um 9 tíma keyrslu. En Arco er lítill bær við norðurenda Gardavatns á N-Italíu. Flestir voru þreyttir en þó kom ekki annað til greina en líta aðeins á næturlífið í Arco, sem endaði hjá sumum í harðfiskveislu. Mörgum kom á óvart að hundar væru leyfðir á þessu hóteli, sem annars var hið notalegasta í alla staði. En þeir (hundarnir ) tóku það Steina og Kjartan. Litli - Bergþór 25

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.