Litli Bergþór - 01.12.1999, Blaðsíða 20
Oskar og Hildur á Brekku frh
sinni brotnaði þó undan
bflnum í Andalæknum.
Að sumrinu þurfti að taka
hest um leið og kýmar
voru sóttar, þá daga sem
mólkurbfllinn kom. Jón
gamli í Stekkholti byggði
þá sameiginlegan
brúsapall fyrir okkur við
Stekkholtsafleggjarann.
Það var alltaf
samvinna um
smalamennskur, og eftir
að fjárhúsið að Miðhúsum
kom '53, var oftast rekið
heim þar og rúið. Eins var
baðað þar. Ég man eftir 36
tíma töm við
smalamennskur og rúning.
Þegar ég kom heim daginn
þann var ég fljótur að
sofna meðan Hildur týndi
til bitann. Það var
geysilegt álag að þurfa að
vinna þetta allt í einni lotu
og tafsamt að lemba féð
eftir rúninginn.
Mér dettur í hug fyrsta haustið, sem ég fór í
smalamennsku í Brekkumar og hafði hænsnakjöt með í
nesti. Það höfðu fylgt nokkrar hænur með í kaupunum
þegar við keyptum jörðina, og mér hafði tekist að höggva
af þeim hausinn, þó ég sé annars ekki mikið fyrir að
sálga skepnum. En það þótti Gísla í Uthlíð alveg
ómögulegt nesti, og næsta haust kom hann til mín nokkru
fyrir smalamennskurnar og sagði: Jæja Óskar, nú skulum
við fara og ná í fjalllambið. Og síðan hjálpaði hann mér
að farga lambinu og gera það til.
L-B: Hvemig var með samgöngumar, hvenœr
kom vegur að Brekku ?
Arið 1957 var kominn óofaníborinn
vegarmðningur í Torfholtið. Brú kemur svo á Brúará
árið 1960 og á Fullsæl 1961 og ofaníborinn vegur svo í
beinu framhaldi af því. Þá breyttist margt.
Eins var ekkert símasamband fyrr en 1955.
Bændumir hér með Hlíðunum þurftu sjálfir að dreifa
staurunum, hver heim á sinn bæ. Við dreifðum staurum
frá Miðhúsum að Brekku, drógum þá á stóra traktomum.
L-B: Börnin ykkar, hver eru þau?
Hildur: Við eigum 3 börn. Hólmfríði, sem fædd
er 1947. Hún á 8 böm, þaraf 7 á lífi, og 5 barnabörn.
Páll, fæddur 1951, á 3 böm og María, fædd 1957, á 3
drengi. Þetta er því orðinn þónokkur hópur af
afkomendum.
Hólmfríður býr hér í Rauðaskógi, sem er nýbýli úr
Brekkujörðinni, ásamt Sigurði manni sínum, en Páll og
María eru flutt að heiman. Páll er á Króki í
Gaulverjabæjarhreppi og María vestur á Patreksfirði
ásamt Halldóri manni
sínum. En þótt þau hafi
flutt, sækja barnabömin í
að koma hingað og vilja
helst hvergi annarsstaðar
vera og það er yndislegt.
Jóhannes, sonur
Fríðu, hefur byggt sér
nýbýlið Efri-Brekku hér
úr landi Brekku og býr
þar með fjölskyldu sinni
og er með heilmikla
vélaútgerð. Synir Palla,
Oddur og Kristinn Páll,
eru hér hjá okkur þegar
þeir koma því við og eins
elsti sonur Maríu, Óskar
Kristinn, eða Addi, eins
og hann er kallaður. - En
Óskar var jafnan kallaður
Addi á yngri árum í
Reykjavík. -
L-B: Voru nothæfar
byggingar á Brekku þegar
þið komuð, eða þurftuð
þið að byggja allt upp?
Óskar: Þegarvið
komum hingað var hér gamalt íbúðarhús og hlaða, fjós
og hesthús úr torfi áfast við það. Þó var ekki innangengt
úr hlöðunni í útihúsin.
Arið 1951 var þetta íbúðarhús byggt upp úr gamla
bænum, á sama grunni og hluti af veggjunum notaðir.
Kjallarinn var varla manngengur, en þegar hitaveitan var
tekin inn fyrir 10 árum, var hann grafinn niður í
miðjunni. Timburgólfið hér í eldhúsinu er eins og það
var, yfir kjallaranum.
Til að byrja með stækkaði ég hesthúsið og útbjó 6
bása fjós þar. Síðan var nýja hlaðan byggð '54-'55, 10
bása fjós við suðurendann 1960 og fjárhús fyrir 180
kindur við norðurenda hlöðunnar árið 1965. Áður, um
1958, hafði ég byggt upp Nónhóls-fjárhúsin fyrir um 220
kindur.
1 Öskjugosinu 1961 versnaði ég mjög mikið af
ofnæmi. Það er svo skrítið, að það var eins og ég
versnaði alltaf af ofnæmi þegar gaus einhversstaðar.
Árið 1947, eftir Heklugosið, varð ég líka mjög slæmur
af heyofnæmi. Fékk slæmt kvef um haustið og var
mæðinn. Svo fór ég eina nótt til Reykjavíkur, og kom
alheill heim, og fann ekki fyrir þessu í 14 ár, eða þar til í
næsta gosi.
Hildur: Ég man þegar Margrét á Miðhúsum var
að draga Óskar á kóræfingarnar þegar hann var sem
verstur af heymæðinni. Það hefur væntanlega verið fyrir
Skálholtshátíðina '63. Ég var nú ekkert alltof hress með
það að hann væri að þvælast þetta með hita, en hann kom
oftast hitalaus og endurnærður til baka. Söngurinn
virðist hafa svona góð áhrif á hann, bæði öndunin og að
komast burt frá heyrykinu.
'lyna ð (larett) usKar og tiiidur meö ajkomenunum.
Myndin tekin í Rauðaskógi á sjötugsafmœli Oskars 1989.
Fremri röðfrá vinstri: Ashildur Sigrún, Ragnhildur Petra,
Guðríður Olga, Hildur Osk (allt dœtur Fríðu),
María með Oskar Kristin, Þuríður Agústa (dóttir Fríðu) og
Hekla Hrönn (dóttir Páls).
Aftari röð: Kristinn Páll hjá Páliföður sínum, Óskar, Ólafur
Jóhann (sonur Fríðu) hjá Jóhannesi bróður sínum, Hildur,
Margrét fyrrv. kona Páls, Oddur Óskar, sonur Páls,
Hólmfríður og Sigurður maður hennar.
Litli - Bergþór 20