Litli Bergþór - 01.12.1999, Page 29
Kvenfélagsfréttir
Sæl nú öll sömul! (Karlar lesi þetta líka.)
Ein villa slæddist inn í aprílblaði Litla Bergþórs. Þar er sagt að meðstjórnendur séu Aðalheiður Helgadóttir og
Ingibjörg Bjamadóttir, en hið rétta er að Aðalheiður Helgadóttir og Þuríður Sigurðardóttir eru meðstjómendur
Kvenfélagsins og biðjumst við velvirðingar á þeim mistökum.
Afmælisfundur var haldinn í Réttinni í Úthlíð föstudaginn 23. apríl. Byrjað var á að borða gómsætan mat af
hlaðborði. Á eftir var leiklestur upp úr gömlum fundargerðarbókum og skáldað svolítið með. Einnig vom
símboðafréttimar teknar fyrir og að síðustu vom tekin nokkur létt dansspor við undirleik Sigfúsar Ólafssonar.
Vorfundur var haldinn á Brautarhóli 21. júní (dálítið seint). Ákveðið var að vera með sölu í tjaldinu tvo
laugardaga í júlí en varð ekki nema einn. Ekkert varð úr ferðalaginu norður á Dalvík eins og til stóð en í staðinn var
farið mánudaginn 19. júlí til Víkur og farið í hjólabátasiglingu með Denna. Stoppað var í hellinum og þar fengum við
snafs og hákarl og svo sjávarréttahlaðborð með bjór. Mikið gott og mikið gaman.
Haustfundur félagsins var haldinn í Bergholti mánudaginn 1. nóvember. Ragnari sveitarstjóra (sveitó) var boðið á
fundinn og vom honum afhentar 100 þús. krónur sem Kvenfélagið gefur til Aratungu og lagðar verða í nýju
uppþvottavélina.
Fyrirhugað er að skreppa eitthvert kvöld til Reykjavíkur í bíó og einnig verða föndurkvöld. Þið fáið að frétta af því
í næsta blaði.
Með bestu jólakveðju frá félaginu, Oddný formaður.
Það þarfekki að vera flókið að spila í happdrœtti. Þú kemur eða hringir
og velur happanúmer.
* Greiðir einn mánuð i einu.
* Greiðir allt árið.
* Greiðir inn á bankareikning.
* VISA eða EURO raðgreiðslur
Allir vinningshafar fá vinninginn lagðan sjálfkrafa inn á bankareikning.
Um 1,5 milljón var greidd í vinninga árið 1997 hjá umboðinu.
Umboðsmaður í Biskupstungum:
Sveínnn A. Sæland
Espiflöt
Simi: 486 8955 og 486 8813
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
Litli - Bergþór 29