Litli Bergþór - 01.06.2007, Side 9
Sigurður Páll Sveinbjörnsson tók þátt í upphífum og
dýfum, hann náði 13 upphífum og 19 dýfum. Eyrún
fda Guðjónsdóttir sigraði glæsilega í fitnessgreipinni
þar sem hún hékk í 3,51 mín. og var það langbesti
tíminn í þeirri grein. Og síðan tók hún armbeygjur þar
sem hún náði 11 stk. í hraðabraut kepptu Sævar
Sigurjónsson og Guðrún Linda Sveinsdóttir, þau fóru
brautina villulaust og lentu í 3. sæti.
Eyrún, Siggi, Linda og Sævar.
Stuðningsfólk skólans!
Upplestrarkeppni
Upplestrarkeppnin var haldin 15. mars og hafnaði
Hjalti Pétur Jakobsson úr Grunnskóla
Bláskógabyggðar í 3. sæti.
Skemmtun fyrir l.-6.bekk
í mars héldum við skemmtun fyrir 1.-6. bekk. Við
fórum með þau í íþróttahúsið, leyfðum þeim að djöfl-
ast út um allt og gera sig alveg uppgefin. Síðan var
farið upp í skóla, þar gáfum við þeim djús og kökur,
sem við bökuðum, á meðan þau horfðu á myndband.
Videokvöld
í haust héldum við videokvöld fyrir 7.-10. bekk. Það
fannst öllum mjög skemmtilegt að fá að gera eitthvað
svona slakandi eftir skemmtilegan dag. Það kostaði
200 krónur inn og fór það allt upp í myndina og í
nemendafélagssjóðinn.
DJ ball
DJ ballið var haldið 15. mars á Stokkseyri og
Eyrarbakka. Dj Kalli sá um það, og hélt stemmingunni
ágætlega uppi. Þetta var síðasta ballið sem við fengum
að fara á og það var bara mjög gaman. Síðan á leiðinni
heim var meira að segja sungið og skemmt sér.
Allir á fullu að dansa!
Bingó
Við í Nemendafélaginu héldum haust og vor bingó
sem voru opinn öllum. Það gekk vel að safna vinning-
um sem við fengum hjá fyrirtækjum og einstaklingum
hér í kring og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir
stuðninginn. Það var góð stemming á báðum bingóun-
um og voru flestir ánægðir með vinningana sína.
Glímumót
Grunnskólamót íslands fór fram 17. mars s.l. í fang-
bragðahúsi Armanns í Reykjavík. Grunnskóli
Bláskógabyggðar
átti fimm keppendur
sem stóðu sig með
miklum sóma.
Astrún Sæland
gerði sér lítið fyrir
og sigraði í 8. bekk
stelpna og varð þar
með grunnskóla-
meistari íslands í
glímu í 8. bekk.
Finnur Jóhannesson
lenti í þriðja sæti í
5. bekk stráka.
Ástrún Sæland
Finnur lengst til hægri.
Við vonum að lesendur hafi haft gaman af þessari
lesningu og séð það mikla starf sem unnið er innan
veggja skólans.
Auður Yr Jónsdóttir
Sigurður Skúli Benediktsson
Katrín Ösp Jónasdóttir
Eyrún ída Guðjónsdóttir
Karitas Róbertsdóttir
Astrún Sæland
Bjarni Sævarsson
9 Litli Bergþór