Litli Bergþór - 01.06.2007, Blaðsíða 27
við raunverulega notkun svæðisins þar sem nú er
tj'aldssvæði, golfvöllur og hús fyrir umsjónarmann
svæðisins. Hins vegar er gert ráð fyrir að lítið
frístundabyggðarsvæði á bæjartorfu Böðmóðsstaða
breytist í landbúnaðarsvæði.
Sveitarstjórn samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 1.
mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga og felur
skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.
5. Tillaga að breytingu aðalskipulags
Laugardalshrepps 2000-2012; Lækjarhvammur.
Lögð fram að nýju tillaga að breytingu á
aðalskipulagi Laugardals 2000-2012 í landi
Lækjarhvamms. í breytingunni felst að 90 ha svæði
úr landi Lækjarhvamms breytist úr
landbúnaðarsvæði í svæði fyrir frístundabyggð.
Tillagan var auglýst samhliða tillögu að
deiliskipulagi hluta svæðisins frá 31. ágúst til 28.
september 2006 og var frestur til athugasemda til 12.
október 2006. Fjögur athugasemdarbréf bárust á
kynningartíma auk þess sem fyrir liggja umsagnir frá
Umhverfisstofnun, Fornleifavernd ríkisins og
Heilbrigðiseftirliti Suðurlands. Tillagan var
samþykkt í sveitarstjórn 7. nóvember 2006 og aftur
þann 9. janúar 2007. Skipulagsstofnun hefur fengið
málið jafn oft til afgreiðslu og í bæði skiptin hefur
verið talið að gera þurfi nánar grein fyrir afstöðu
sveitarstjórnar til umsagnar Umhverfisstofnunar. Nú
liggur fyrir endurskoðuð breytingartillaga þar sem
nánar er gerð grein fyrir hvernig komið verður til
móts við athugasemdir Umhverfisstofnunar, s.s. að
ekki verði heimilt að skerða votlendi á svæðinu og
að þéttleiki svæðisins verði í samræmi við
aðliggjandi svæði. Að auki hefur nýju brunnsvæði
verið bætt við ofan svæðisins. Til frekari skýringar
liggur fyrir endurskoðuð tillaga að deiliskipulagi
svæðisins sem felur m.a. í sér að lóðum hefur
fækkað um 25%, úr 60 í 46, tekið er fram að ekki sé
heimilt að grafa skurði meðfram vegum til að ræsa
fram landið, auk þess sem lega vega innan svæðisins
hefur breyst. Fyrir liggja athugasemdir sem bárust á
kynningartíma auk mótmæla sem bárust sveitarstjórn
síðar. Þó svo að flestar athugasemdirnar eigi við
útfærslu deiliskipulags. Auk fyrrgreindra gagna
liggja fyrir drög, dags. 22. maí 2007, að umsögn um
innkomnar athugasemdir.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða skv. 18. gr.
Skipulags- og byggingarlaga fyrirliggjandi breytingu
á aðalskipulagi Laugardalshrepps 2000-2012, með
tilvísun í fyrirliggjandi umsagnir um innkomnar
athugasemdir, og felur skipulagsfulltrúa að vinna
málið áfram.
Urskurður umhverfisráðherra vegna kæru Péturs M.
Jónassonar vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar
um mat á umhverfisáhrifum vegna Gjábakkavegar.
Lagður fram úrskurður umhverfisráðherra vegna
kæru Péturs M. Jónassonar vegna ákvörðunar
Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum
vegna Gjábakkavegar. I úrskurði ráðherra kemur
fram að úrskurður Skipulagsstofnunar er staðfestur
með skilyrðum. Skilyrt er að Vegagerðin láti gera
mælingar á ákomu loftaðborinnar
köfnunarefnismengunar áður en framkvæmdir
hefjast og í a.m.k. 5 ár eftir að framkvæmdum líkur
og gera samanburð við aðrar mælingar sem gerðar
hafa verið á svæðinu. Vegagerðinni ber að hafa
samráð við Umhverfisstofnun um mælingarnar og
mat á þeim.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar fagnar úrskurði
umhverfisráðherra og hvetur Vegagerðina til að hefja
sem allra fyrst undirbúning að framkvæmdum við
Gjábakkaveg.
Samþvkkt fvrir búfjárhald í Bláskógabvggð.
Lögð fram drög að samþykkt fyrir búfjárhald í
Bláskógabyggð, sem hefur tekið breytingum í
samræmi við síðustu umræðu um samþykktina í
sveitarstjórn.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að leita eftir
staðfestingu landbúnaðarráðuneytisins á
samþykktinni eins og hún liggur fyrir.
Tillaga að breytingu á samþykktum
Bláskógabyggðar (fyrri umræða).
Lögð fram tillaga að breytingu á samþykktum um
stjórn og fundarsköp fyrir Bláskógabyggð. Um er að
ræða breytingu á 34. gr. samþykktanna, ný 9. gr í A-
lið og breytt 16. gr. í B-lið.
Ný 9. gr. A-liðar hljóði svo:
“9. Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurlands. Einn
fulltrúi og einn til vara.”
Breytt 16. gr. B-liðar hljóði svo:
“16. Sameiginleg byggingarnefnd uppsveita
Arnessýslu. Sameiginleg byggingarnefnd er með
Grímsnes- og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi,
Skeiða og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi. Skipa
skal einn aðalmann og einn til vara.”
Framlögð tillaga vísað til síðari umræðu í
sveitarstjórn, sem verður á næsta fundi
sveitarstjórnar.
Innsent erindi:
Bréf frá Skálholtskórnum, dags. 26. aprfl 2007.
Lagt fram bréf frá Skálholtskórnum, dags. 26. apríl
2007, þar sem stjórn kórsins óskar eftir aðgengi að
húsnæði Grunnskóla Bláskógabyggðar í Reykholti
til söngæfinga.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela oddvita
að ræða við málsaðila og kanna hvort finna megi
lausn þessa máls.
27 Litli Bergþór