Litli Bergþór - 01.12.2008, Síða 6
Hestamannafélagið Logi hélt hestaþing sitt við
Hrísholt í byrjun ágúst. Þar var keppt í A, B og
barnaflokki gæðinga, tölti 1. flokki, barna- og
unglingaflokki, 150 m skeiði, 250 m skeiði, 300 m
brokki og 100 m „fljúgandi skeiði“.
Félag aldraðra stóð fyrir ferðalagi norður í land
og til Grímseyjar upp úr miðjum júní og önnur ferð
var farin austur í Mýrdal í ágúst og m. a. siglt í gegn-
um gatið á Dyrhólaey. Þessi ferð var að mestu í
boði Kvenfélags Biskupstungna og
Bláskógabyggðar. Vetrarstarfið hófst í byrjun
október og felst það í samkomu með ýmiskonar
dagskrá fimmtudaga í byrjun hvers mánuðar,
tréskurði með leiðsögn Ragnhildar í Gýgjarhólskoti
og fleiru hina fimmtudagana og líkamsæfingum í
íþróttamiðstöðinni hvern þriðjudag undir stjórn
Helga Kjartanssonar, íþróttakennara.
Hilmar Örn Agnarsson, organisti, er hættur
störfum hér í sveit og fluttur á brott. í tilefni af
því voru haldnir kveðjutónleikar í
Skálholtskirkju síðast í september. Þar sungu
einir fjórir kórar, tveir einsöngvarar og sex
hljóðfæraleikarar. Aðgangur var ókeypis en
gestum gefinn kostur á að leggja fram fé í
námssjóð fyrir Hilmar Örn.
Steinunn Bjarnadóttir og Kjartan
Jóhannsson hafa keypt gistiheimilið Húsið
við Bjarkarbraut í Reykholti og tekið á leigu
veitingastaðinn Klett við Skólabraut.
Veiðifélagið Lax-á, sem hefur á leigu veiði
í hluta Tungufljóts og ám, sem í það renna, kynnti
starfsemi sína við Faxa í byrjun október. Öllum
landeigendum og ábúendum var boðið að veiða þar
endurgjaldslaust og veitingar voru til reiðu.
Ráðstefna um menntun og menningu í
Skálholtsstifti 1620 - 1730 var haldin í
Skálholtsskóla upp úr miðjum október. Þar fluttu á
annan tug fyrirlesara erindi. Þar á meðal greindi
Mjöll Snæsdóttir, fornleifafræðingur, frá uppgreftri í
Skálholti og Skúli Sæland, sagnfræðingur, sagði frá
steinboganum á Brúará, sem Helga Jónsdóttir, bisk-
upsfrú í Skálholti, átti að hafa látið brjóta niður árið
1602.
Hagyrðingakvöld var haldið í Aratungu um
miðjan nóvember á vegum Lionsklúbbsins Geysis,
og sama kvöld héldu björgunarsveitir-
nar í Grímsnesi og Bláskógabyggð
árshátíð á Klettinum. Undir lok þess
sama mánaðar héldu Vörðukórinn og
Sönghópurinn Veirurnar söngskemm-
tun í Aratungu.
Göngustígur hefur verið lagður með
þjóðveginum í gegnum Laugaráshverfi, og
brunahanar hafa verið settir upp við nyrstu
gatnamótin í Laugarási og við Bjarnabúð á
Brautarhóli.
Sparkvellirnir við grunnskólana í
Reykholti og á Laugarvatni voru formlega
teknir í notkun við hátíðlega athöfn á
báðum þessum stöðum undir lok nóvem-
ber.
A. K.
Ketilbjörn ehf.
vinnuvélaverktaki
Syðri-Reykjum.
Grímur Þór - Sími 892 3444
Litli Bergþór 6