Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.1997, Page 24

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.1997, Page 24
Reunion Ættfræðiforrit fyrir Makkann: 3. grein Niðjatal í ættfræðiforritinu Reunion 4.0 Skrár og töflur Reunion býr til Niðjatöl og Niðjatöflur. í báðum tilfellum byrjar skjalið á einum foreldrum og stefnir fram í tímann - frá upphafsforeldrunum. Upp- hafsforeldrarnir eru eiginmaður og eiginkona á fjölskylduspjaldinu á skjánum hverju sinni. Niðjatal er texti með inndregnum línum sem sýnir niðja (afkomendur) upphafsforeldranna tiltekinn fjölda kynslóða. Niðjaskrár innihalda engar teiknaðar einingar - svo sem ramma (kassa) eða línur (strik). Slíkar einingar eru í Niðjatöflum sem fjallað er um í 41. kafla. Hér er lítið dæmi um niðjaskrá: Jón Sveinsson og (&) Helga Einarsdóttir Einar Jónsson og Guðrún Amadóttir Katrín Einarsdóttir Jón Einarsson Árni Einarsson Til þess að sjá hvernig hin myndræna niðjatafla lítur út er vísað ábls. 31-1,41-1 og41-4 í leiðbeiningabókinni með Reunion 4.0. Niðjatal búið til Til þess að búa til niðjatal skal velja Niðjatal undir Útbúa. Um leið opnast gluggi með ýmsum valkostum. Stærð niðjatals Til þess að ákveða stærð skrár innar Niðjatal eru notaðar örvarnar næstar Kynslóðakassanum eða fjöldi kynslóðanna ritaður í kassann. Niðjaskrár geta innihaldið 99 kynslóðir ef vill. Stærðin - fjöldi bókstafa - takmarkast einungis af lausu rými á harða diskinum. Föst númer (Persónunúmer) Eigi persónutölurnar að vera með í niðjatalinu skal merkja (velja) persónunúmerahnappinn (Föstnúmer- ferninginn) (sjá mynd á bls. 31-2). Sé þetta ætlunin koma persónunúmerin við hvert nafn í skránni. Athugasemd: Persónunúmer, fæðingardagar og dánardagar við hvert mannsnafn í niðjaskrá verða fljótt að talnarunum sem taka sitt pláss. Dagsetningar Vilji menn einungis hafa fæðingar- og dánardaga skal merkja við Dagse(tningar). Vilji menn hafa fulla fæðingar- eða dánardaga, til dæmis 23. des. (23 Des) 1973 í stað aðeinsl973, skal merj aviðFulldags(etning) (sjá mynd á 31-2). Til þess að útiloka dagsetningar alveg eiga dagsetningareitir að vera ómerktir (auðir). Makar Til þess að innifela maka niðja skal merkja Maka- reitinn. Með þessu vali kemur listi yfir beina afkom- endur og maka þeirra sé þeim til að dreifa. Dæmi: Davíð Lárusson (1831-1891) & Katrín Valsdóttir (1832-1912). Niðjar, sem átt hafa fleiri en einn maka, verða skráðir einu sinni í hverju hjónabandi og verða merktir með stjömu (asterisk) aftan við nöfn þeirra. Feitt letur - Beinn leggur Ef þessir kostir (Feitletra og Beinn skyldleiki) eru valdir (sjá skýringarmynd á bls. 31 -2 og 31 -3) verða öll nöfn einstaklinga í beinan legg með feitu letri. Með því að fylgja feitletruðu nöfnunum má rekja beina legginn (sjá aftur bls. 31-3 í leiðbeininga- bókinni). Feitletra - Stakar kynslóðir Sé Stakar kynslóðir-kosturinn (“Odd Generations”) valinn birtast öll nöfn niðjaskrárinnar sem eru utan beina leggsins með feitu letri. Textalínur Sé merkt í Textalínureitinn fást lóðréttar tengilínur í niðjaskrána. Þessi kostur á einungis við í textaskrám og eru “línurnar” myndaðar úr bókstaf (1). Þetta er fljótleg leið til þess að gera ómyndrænt niðjatal greinilegra án þess að búa til myndræna töflu. Sýnishornin á bls. 31 -3 nýta þennan kost (Textalínur). Sníðing niðjatala (Snyrta) Þegar niðjaskrá er búin til byrjar Reunion á birtu fjölskylduspjaldi og horfir “niður” (fram í tímann). Forritið safnar upplýsingum um alla niðja upphafsforeldranna þangað til komið er á enda beinnar rakningar eða þangað til komið er að tilgreindri lokakynslóð (2 til 99). 24

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.