Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.1997, Blaðsíða 23

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.1997, Blaðsíða 23
r Bókagjafir Ættfræðifélaginu hafa borist margar og veglegar bókagjafir á undanförnum mánuðum. * Þjóðsaga hefur fært félaginu Vélstjóra- og vélfræðingatal I og II og Verkfræðingatal I og II ásamtPóstsögu íslands eftir Heimi Þorleifsson að við bættriKrákustaðaætt og Saga Njarðvíkur eftir Kristján Sveinsson. *ÁsthiIdur Steinsen gaf félaginu bók sína Stelpurnar á stöðinni. * Hulda Friðriksdóttir gaf Niðjatal Guðrúnar Kristmundsdóttur og Stefáns Jónssonar, Smyrlabergi Ásum, A-Hún. * Jóhann Þór Jóhannsson gafNiðjatal Guðjóns Jónssonar, Marteu Guðlaugar Pétursdóttur og Guðrúnar Grímsdóttur frá Oddsstöðum. * Þór Guðjónsson gafAuðholtsætt í Ölfusi I og II. * Mál og Mynd gaf Þorsteinsætt. * Bæjarstjórn Keflavíkur gafKeflavík í byrjun aldar. Ættfræðifélagið færir öllum gefendum sínar bestu þakkir fyrir rausnarskap og hlýhug, en það er mjög mikilvægt fyrir félagið að eignast góðan bókakost til eflingar starfseminni. Án gagna kemur húsnæðið við Dvergshöfða að takmörkuðum notum. Það hefur marg sýnt sig á “Opnu húsi “ að heimildir eru mikið notaðar og flett upp í mörgu. Stjórnin. Af sumarferðinni 1996 framhald þarna tæki og bækur margskonar til ættfræðiiðkunar. Bjami fór með okkur yfir það helsta og var þetta allt mjög fróðlegt. Næstvarekið heim til Bjarna og hann kvaddur og þökkuð leiðsögnin. Stoppað var í Hyrn- unni um kvöldmatarleitið og fengu flestir séreitthvað að borða. Þegar haldið var á stað aftur, tók Vífill við að fræða okkur enda komið aftur í hans sveitir. Við skiluðum honum heim í Ferstiklu þökkuðum honum góða leiðsögn og kvöddum vel. Komið í Umferðamiðstöð rúmlega 21 ,oo á áætl un. Manntöl Munið manntöl Ættfræðifélagsins, ómissandi hverjum áhugamanni um ættfræði. Manntal 1801, Vesturamtkr. 2800,- Norður- og Austuramt kr. 2500.- Manntal 1801, Öll þrjú bindin, kr. 9.000.- Manntal 1816, VI. hefti kr. 600,- Manntal 1845, Suðuramt kr. 3000,- Vesturamt kr. 2800.-, Norður- og Austuramt kr. 3100,- Manntal 1845, Öll þrjú bindin, kr. 8.000.- Öll Manntölin 1801 (3 bindi) og 1845 (3 bindi) á 15000.-. Manntal 1910, Skaftafellssýslur, kr. 2800.- Rangárvallasýsla og Vestmannaeyjar kr. 4.700.- Bækumar má panta hjá formanni félags- ins, Hólmfríði Gísladóttur, hs. 557-4689 og Þórarni Guðmundssyni gjaldkera, hs. 564-2256, vs. 554-1900. Eflum útgáfustarf Ættfræðifélagsins _________________________________J N Athugið! Af sérstökum ástæðum eru til sölu bækur um ættfræði, þjóðlegan fróðleik og fleira. Upplýsingar hjá Ragnhildi Óskars- dóttur í síma 588-0048 V____________________________________) 23

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.