Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2007, Side 21

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2007, Side 21
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2007 Eftirfarandi vísu orti hann til Ingu Árnadóttur vinkonu sinnar á skrifstofunni. Inga varð seinna eiginkona Vilhjálms Þ. Gíslasonar, skóla- og útvarpsstjóra. Skrifstofuvísa (1918) Sólin þótt ei sjáist hér, samt ég hag minn róma, því sólufegri á móti mér meyjaraugu Ijóma. Það má geta þess að afi minn hafði mjög fallega söngrödd, sem hann beitti að smekkvísi, segja vinir hans, og var söngurinn hans hjartans mál alla tíð svo og tónlist almennt. Hann átti t.d. grammófón upp úr 1920 og naut þess að hlusta á fallega tónlist. Tveir af sonum hans, Haukur, faðir minn, og Ingi Baldur lærðu á fiðlu og lék Ingi með Sinfóníuhljómsveitinni um árabil. Valborg Elísabet lærði á píanó sem til var á heimilinu. Afi var einn af stofnendum „Kátra félaga“ og síðar „17. júní kórsins“. Sönglistin (1892) Ó, hvað er það sem huggar best er hjartað sorgir sker? Og hvaðfœr aukið gleði og glaum þá glatt á hjalla er? Það er að heyra hvella skært in himinfögru lög, það sorgarinnar burtu ber hin bitru skýjadrög. Og sjaldan verður lífsvo leitt, að láti ei huggast ég, efheyri ég aðeins sungið sœtt um sorg eða gœfu veg. Og ekkert getur ágœtt meir hinn unga og frjálsa lýð, en heyra gjalla lipur Ijóð með lögin undra-þýð. Þú sönglist ert svo hrein og há og hafin yfir glaum, þú ert svo laus við lygi og tál og lífsins ólgustraum. Því í þér aðeins fegurð felst, hið fagra glœðir þú. Þú ert frá himnum œttuð víst, þar er þitt rétta bú. Ég skyldi gefa gull og frœgð, efgnótt ég œtti afþví, Helga Benediktsdóttir Gröndal, síðar Egilson, og Sveinbjörn Egilsson rektor voru móðurforeldrar Benedikts Þ. Gröndal. Helga var dóttir Benedikts Gröndal skáids. Bencdikt Gröndal skáld var því langafi nafna síns Benedikts Þ. Gröndal og langalangalangafi Guðfinnu Lilju Gröndal. til að geta unað œ við undra-lögin hlý. Og þegar lífsins kemur kvöld ég kýs mér þetta eitt, að heyra fagran hljóma söng, þá lijartað brestur þreytt. Þú drottning lista, lofsé þér, sem lífgar hug og sál, égfæ þér ei með orðum lýst, þú ert svo himneskt mál! Amma tekur við uppeldinu Til Reykjavíkur komu þau afi og amma vorið 1907. Ekki var hægt að segja að Reykjavík hafi verið myndarbær á þessum árum, geysileg húsnæðisekla var þar og næstu ca 10 árin bjuggu þau á 6 stöðum. 1924 festa hjónin kaup á húsinu nr. 24 við Ránargötu, sem síðan varð heimili þeirra þar til Benedikt dó 1938. Þá er það árið 1940 í janúar að móðir mín, Sigríður Pálsdóttir, deyr og pabbi situr einn með tvö börn 3ja og 4ra ára. Ég tel það gæfu okkar að þá kom amma mín á heimilið og annaðist okkur systkinin. Eins og ég gat um áðan, þá var amma hin dæmigerða húsmóðir og bústýra. Hún stjórnaði af röggsemi og mildi. Eitt af gullkomum, sem amma mín sagði, var: „Geymdu ekki til morguns, það sem þú getur gert í dag.“ Eftir að pabbi minn kvæntist aftur, þá hélt amma sínum störfum og þegar bræður mínir þrír bættust í hópinn, var það amma sem hélt öllu gangandi, hún var kletturinn í lífi okkar. Sigurlaug amma mín lést 24. október 1960. http://www.ætt.is 21 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.