Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.12.2008, Page 5

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.12.2008, Page 5
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í desember 2008 til varnar í samfélagi án miðstjórnarvalds. Er þá mið- að við mægðir, fóstur, fóstbræðralag, frillutengsl, nágranna, vináttu, tengsl við goða og guðsifjar. Þetta breytir því þó ekki að blóðtengsl og ættaþekking skiptu höfuðmáli. Karlar reyndu að verja sig og sína, voru á varð- bergi gagnvart tortryggilegu fólki og leituðust við að mynda traust. Voru nýir nágrannar traustir? Liður í að reyna að leiða það í ljós gat verið að kanna hvort þeir væru komnir af traustu fólki. Væri td. ljóst að afi manns og afi nágrannans hefðu verið vinir var það traustvekjandi. Okunnir menn voru jafnan tortryggðir í hinu miðstjórnarlausa samfélagi. Þá var oft gott ráð að spyrja um ættir og reyna að rekja saman tengsl. Þetta gerist auðvitað enn, td. þegar við tökum upp spjall við Islendinga á hóteli í útlöndum, fólk sem við þekkjum ekki neitt, þá getur okkur þótt fróðlegt að heyra um uppruna þess og vita að það þekki vel fólk sem við þekkjum að góðu eða sé skylt því. Eftir það verða samskipti oft auðveldari. Þetta var enn brýnna að fornu, í landi án miðstjórnarvalds, eins og kemur td. fram í sögunni um norska kaupmanninn Örn sem kom til íslands og frá segir í Hænsa-Þóris-sögu. Hann hlaut ekki biíðar viðtökur fyrr en stórbóndinn Blund- Ketill kom honurn til hjálpar af því að hann þekkti föður hans og taldi hann hinn besta mann. Það var von til að sonur væri líkur föður og Blund-Ketiil tók Öm kaupmann að sér og greiddi götu hans.1 Þetta er tilhneigingin í samfélögum án eiginlegs miðstjórnarvalds, eins og í þjóðveldinu fyrir 1262. Menn urðu að mynda bandalög sér til vamar og treystu þá á sinn hóp, ættingja, nágranna og vini. Útlendingar leituðu verndar hjá mektarmönnum. Hér kemur fram það sem mannfræðingar kalla „við og hinir“. Þetta kemur td. fram í sinni einföldustu mynd í kvikmynd Scorseses The Goodfellas. Við, ættingjar, nágrannar, vinir, erum góðir, hinir eru tortryggilegir. Nútímaíslendingar sem vanir eru sterku ríkisvaldi sem heldur uppi lögum og reglu munu líklega flestir telja þetta heldur einfaldan heim þar sem menn eru annaðhvort góðir gæjar eða vondir gæjar. A þjóð- veldistímanum hefur þetta hins vegar þótt eðlilegt og í samskiptum ríkja á okkar dögum þekkjum við þetta, td. núna síðast vegna fjármálakreppunnar. Erlendur kaupmaður sem var ókunnur hérlendis og kom því úr röðum hinna átti allt undir því að við viðurkenndum hann og þá gat ættfræðin hjálpað, að við könnuðumst við ætt hans að góðu einu eða könnuðumst við ein- hverja sem tengdust honum. í öðru lagi var það sjónarmið að innan hóps okkar voru ekki allir jafnir: Andstæðingarnir Biund-Ketill og Hænsa-Þórir voru ekki jafnir, eftir Hænsa-Þór- is sögu að dæma. Ættir Ketils eru raktar en þess er ekki getið hverra manna Þórir var. Sumir gátu ekki Það eru margar hliðar á ættfræðiáhuga og saga merkra forfeðra og formæðra getur verið afkomendum hvatning til afreka sem er iíklega oftast hið besta mál. Hún getur líka orðið tilefni til drambs, menn þykjast öðrum meiri vegna ætternis án þess að státa af nokkrum afrekuni. Þetta sagði Helgi Þorláksson sagnfræðingur í erindi sínu og benti um leið á að ættartölur gefi oft kost á að rekja hags- munatengsl eða hugsanleg hagsmunatengsl milli manna. státað af forfeðrum sem voru þekktir og nutu trausts og kannski vissu þeir ekki mikið um þá. Okkur þykir það varla tiltökumál um fólk núna þótt það sé ekki vel að sér um forfeður sína og formæður, viljum meta hvern einstakling út frá manngiidi hans fremur en ættum. Öðru máli gegndi á þjóðveldistíma, þar var gerð krafa um að menn þekktu ættir sínar f fimm liði, eða lengra, og könnuðust jafnvel við alla frænd- ur sína sem voru fimmmenningar eða skyldari, eða vissu af þeim, vegna arfs, framfærslu og niðgjalda.2 Þeir sem gerðu það ekki eða höfðu takmarkaða þekk- ingu voru nefndir „skillitlir“ menn og töldust ættsmá- ir og ómerkir. Var þá líklega litið þannig á að þeir væru komnir af fólki sem ekki skipti máli. Hænsa- Þórir mun hafa reynt að bæta slíkt upp með nurli og auðsöfnun. Hann hafði allt að vinna, engu að tapa og gat notað auð sinn, sem hann taldist hafa safnað á fyr- irlitlegan hátt, til að kaupa sér vernd höfðingja. Ættfræði var þannig mikilvæg ma. vegna fram- færslu á þjóðveldistíma og goðar og hreppstjórar og aðrir ráðamenn hafa líklega stundum þurft að spyrja ættfróða menn, leita hjá þeim þekkingar, þegar ráð- stafa þurfti fátæku og fáráðu fólki. Þeir sem kunnu betri skil á ættum sínum gátu rakið 1 Borgfirðinga sögur. íslenzk fomrit III. Útg. Sigurður Nordal og Guðni Jónsson (Reykjavíkl938), 10-11. - Jón Jóhannesson, íslendinga saga I. Þjóðveldisöld (Reykjavík 1956), 24. http://www.ætt.is 5 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.