Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.12.2008, Blaðsíða 23
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í desember 2008
Það var heillandi að fara höndum um frumheimildirnar. (Ljósmynd Guðfinna Ragnarsdóttir)
arbækur allskonar, uppskrifta- og uppboðsbækur
hreppstjóra og loks skipti- og dánarbú sýslumanna.
Hér er um merkilegan flokk heimilda að ræða fyrir
áhugamenn um ættfræði. Úttektin veitir upplýsingar
um húsaskipan og ástand húsa og með því að bera sam-
an úttektir á mismunandi tímum má sjá hvaða breyting-
ar hafa orðið frá einum tíma til annars, það er að segja
á þeim hús- og jarðeignum sem teknar voru út.
I uppskriftar- og uppboðsbækur hreppsstjóra var
meðal annars færð virðing dánarbúa og eins höfðu
hreppstjórar heimild til að halda minni háttar uppboð.
Hér eru eignir nafngreindra manna taldar í smáatrið-
um, allt niður í búsáhöld og fatnað. Skipti á dánarbú-
um gefa oft góða yfirsýn yfir fjölskyldutengsl. Þar
eru taldir allir erfingjar svo og skyldleiki þeirra við
hinn látna.
Þriðja og síðasta daginn var farið yfir hreppsbækur
það er tíundarreikninga, framfærslulista og jafnað-
arreikninga. Þá voru teknar fyrir hreppaskilabækur
sem innihalda framtal til lausafjártíundar og búnað-
arskýrslur. Að lokum var litið yfir dómabækur og
dómsskjöl.
Kristjana Kristinsdóttir leiddi okkur í allan sann-
leika um framtöl til tíundarútreiknings og fátækra-
framfærslu, einnig framtöl til lausafjártíundar en
þar er upptalinn bústofn manna, kýr, kindur, hestar
o.s.frv. og í búnaðarskýrslum er hægt að átta sig á
búskaparháttum og samanburð við aðra bændur á
sama tíma.
Ég tel mig tala fyrir munn allra þeirra sem tóku
þátt í þessu námskeiði, til að þakka Þjóðskjalasafninu
og öllum leiðbeinendunum fyrir frábært námskeið,
sem var allt í senn skemmtilegt, fróðlegt og stutt
mjög góðum námsgögnum. Þetta á eftir að verða
okkur drjúgt veganesti í framtíðinni. Að lokum vil ég
láta þá ósk mína í ljós, að framhald verði á samstarfi
Þjóðskjalasafnsins og Ættfræðifélagins unr slikt nám-
skeiðahald.
Guðmar Magnússon.
Björg Gunnarsdóttir hefur lengi haft áhuga á ættfræði
en er nýgengin í Ættfræðifélagið. Hún lét það verða sitt
fyrsta verk að fara á námskeiðið í heimildum. (Ljósmynd
GuöFmna Ragnarsdóttir)
http://www.ætt.is
23
aett@aett.is