Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2012, Blaðsíða 24

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2012, Blaðsíða 24
FRÉTTABRÉF ^^TTFRÆÐIFÉLAGSINS Ármúla 19, 108 Reykjavík, Heimasíða: http://www.ætt.is, Netfang:aett@aett.is Opnunartími Þjóðskjalasafns Lestrarsalur Þjóðskjalasafnsins er opinn sem hér segir: Kl. 10:00- 17:00 þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga allt árið. Kl. 10:00 - 16:00 á föstudögum á vetrartíma (1. september til 31. maí). Kl. 10:00 - 14:00 á föstudögum á sumartíma (1. júní til 31. ágúst). Sumarlokun og lokun yfir hátíðar er auglýst sérstaklega. Skjöl eru afgreidd tvisvar á dag úr geymslum safnsins,kl. 10:30 og 14:30. Opið hús Munið OPIÐ HÚS alla miðvikudaga frá kl. 17:00-19:00 að Ármúla 19, 2. hæð. Allir eru velkomnir með spurningar og svör, áhuga og gott skap. Þar er margt spjallað og alltaf heitt á könnunni. Munið að þar eru sér- fræðingar á hverju strái sem elska að tala um ættfræði og veita fúslega aðstoð. Nýtið ykkur bókasafnið, tölvurnar og forritin sem hafa að geyma ótal ættartengsl. Komið og kíkið í nýjar ættfræðibækur. Bóksalan er opin á sama tíma og Opið hús. Það gengur óðum á hin ómissandi manntöl og þau eru á góðu verði. STORLÆKKAÐ VERÐ Á MANNTÖLUM Nú er lag að kaupa manntölin. Þau eru aðeins til í takmörkuðu upplagi og verða ekki endurútgefin. Mörg hefti og bindi eru nú þegar uppseld. Ákveðið hefur verið að stórlækka verðin á manntölunum svo allir geti eignast þessi bráðnauðsynlegu hjálpartæki við ættfræðirannsóknir. Tilvalið er að gefa jafnt ungum sem öldnum manntöl í afmælisgjafir. Verðskráin lítur svona út: Manntal 1910 1. bindi: Vestur-Skaftafellssýsla, 1.000 kr 2. bindi: Árnessýsla, 2.000 kr 3. bindi: Rangárvallasýsla, 2.000 kr 4. bindi: Gullbringu- og Kjósarsýsla, 2.000 kr 5. bindi Reykjavík 1 og 2, 8.000 kr Manntal 1845 1 .-3. bindi 1.000 kr hvert bindi Manntal 1816 6. hefti 500 kr (allt sem til er) Manntal 1801 3. bindi Norður- og Austuramt 1.000 kr (allt sem til er) Hægt er að fá þessi manntöl á skrifstofu félagsins Ármúla 19 á Opnu húsi sem er alla miðvikudaga kl. 17:00 - 19:00. Einnig má panta þau í síma 867-4347 eða í tölvupósti á netföngunum aett@aett. is og gudfragn@mr.is. Febrúarfundur Fimmtudaginn 23. febrúar verður haldinn aðalfundur Ættfræðifélagsins. Fundarmenn eru hvattir til þess að mæta. Fundurinn verður haldinn kl. 20:30 í húsakynnum Ættfræðifélagsins að Ármúla 19,2. hæð. Athugið breyttan fundarstað! Kaffi og spjall . . . . Marsfundur Fimmtudaginn 29. mars spjallar Kristín Steinsdóttir, rithöfundur, um skáldsögu sína, Ljósu, les úr bókinni, segir frá tilurð hennar og svarar spurningum. Fundurinn verður haldinn kl. 20:30 í húsi Þjóðskjalasafnsins að Laugavegi 162,3. hæð, Reykjavík. Kaffi og spjal I . . . . Þorgils Jónasson Kambaseli 44 109 Reykjavtk

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.