Foreldrablaðið - 01.12.1934, Page 14
4
Foreídrablaðíð
Villidýrasögur
Stiandvísi og
reglusemi.
handa börnum
heitir nýútkomin bók eftir
mag. Árna Friðriksson.
Höfundurinn skýrir frá
háttum og siðum ýmsra
rándýra og apa og segir
sögur af þeim. Bókin er
bæði skemmtileg og fróð-
leg og hinn ákjósanlegasti
skemmtilestur fyrir börn
og unglinga.
Við Álftavatn
barnasögur eftir Ólaf Jóh. Sigurðs-
son, yngsta rithöfund landsins, þurfa
öll börn að eiga. — Með myndum.
þegar hlutaðeigendur tala saraan um
málið í ró og næði. Síminn er þægilegt
áhald. En reynsla mín segir mér, að
jafnviðkvæm efni eins og þessi eðliiega
eru, ættu aldrei að ræðast í síma, heldur
augliti til auglitis. Ekki ber heldur að
gleyma spakmælinu forna: „Sjaldan
veldur einn, er tveir deila“. Mörgum
börnum hættir til að skýra þau mál
nokkuð einhliða, sem snerta þau sjálf
persónulega. Það er þeim ósjálfrátt. Til-
finningarnar eru örar og lítt tamdar.
Þess vegna er framburði þeirra varlega
treystandi, nema báðir aðilar séu
heyrðir.
Nú ætla eg ekki að ofþyngja blaðinu
með fleiri eða lengri athugasemdum
þessum málum viðvíkjandi í þetta sinn,
en margt fleira mætti hér um segja, sem
væntanlega gefst tækifæri til að taka til
athugunar síðar.
Sig. Jónsson.
Margir húsbændur skólabarna í
Reykjavík hugsa vel um börnin og
hjálpa þeim eins og kostur er. Þau börn,
sem njóta þessarar sjálfsögðu um-
hyggju, koma stundvíslega í skólana og
hafa það með sér, sem þörf krefur. Þessi
börn, sem njóta nægrar umhyggju, eru
jafnaðarlega hraust, fjörleg og glöð.
Þeim sækist námið vel, þau hafa gagn
af skólaverunni. Hvert einasta barn þarf
að eiga heimili, sem lætur því í té allt
það nauðsynlegasta, er það þarfnast.
Hvers þarf skólabarnið með?
Það þarf sæmileg húsakynni, það þarf
hollt og gott fæði, þjónustu góða, eftir-
lit og umönnun. Framar mörgu öðru
verður að tryggja barninu nægilegan
svefn, á hentugum -tíma. Það á að ganga
snemma til hvílu á kveldin. Og því nauð-
synlegra er það, sem barnið á að fara
fyrr á fætur að morgni.
Þá þarf að vekja barnið og sjá um, að
það fái hressingu. Klukkurnar eiga að
vera réttar.
Hvenær eiga börnin að koma 1 skól-
ana hérna í Reykjavík?
Allmörg börn verða að koma í skólana
laust fyrir klukkan 8 á morgnana. Þá
eiga sum börnin að koma rétt fyrir kl. 1,
3 og 4 á daginn. En auk þess verða börn-
in að mæta á ýmsum öðrum tímum,
stund og stund. Er þar ekki gætt hófs
frá skólanna hálfu, og þarf í þessu
fcfni bráðra umbóta. En þetta og fleira
er ekki hægt að lagatil fulls, nema byggð
séu nú þegar tvö skólahús, auk þess húss,
sem er í smíðum.
Ætti að reisa annað skólahúsið í Vest-
urbænum, en hitt suður við Skerjaf jörð.