Foreldrablaðið - 01.12.1934, Side 17
ForeldrablaðiS
7
fyrst og fremst og eingöngu í því, hvað
mikið gott honum hefir tekist að láta af
sér leiða fyrir aðra. Hvað margar
barnssálir hann hefir mótað til sálar-
þreks og hamingjuríkra athafna.
Hvað marga unglingshugi hann hefir
laðað til göfgi.
Frá alda öðli hefir heimspekinga og
sálfræðinga greint á um það, að hve
miklu leyti börn væru fædd með ákveðnu
upplagi og eiginleikum. Með öðrum orð-
um, að hve miklu leyti þau væru fædd
til hamingju eða óhamingju. En nú hall-
ast sálfræðingar meir og meir að þeirri
skoðun, að þótt nokkuð kunni að vera
af meðfæddum eiginleikum hjá börnum,
þá sé farsæld þeirra og hamingja í líf-
inu að langmestu leyti undir því komin,
hversu að þeim sé búið í bernsku. Sum-
ir sálfræðingar halda því fram, að allt
velti á 4—6 fyrstu árunum af æfi barns-
ins og að nálega öll mistök og alla ó-
hamingju í lífi manna megi rekja til
þeirra atburða, sem orðið hafi í lífi
mannsins á fyrstu árum æfi hans. Hefir
þessi skoðun mjög rutt sér til rúms síð-
an hin svonefnda sálgreiniaðferð (Psy-
koanalyse) varð notuð til að lækna and-
lega sjúkdóma og finna orsakir að marg-
háttaðri glæpahneigð. Hér er nú ekki að
sinni rúm til að ræða þetta nánar, en
áreiðanlegt er, að margt, sem miður er
í fari barna, má skýra á þennan hátt,
og þá oftast, þegar orsök er kunn, má á
auðveldan hátt ráða bót á meinsemd-
inni.
Af því, sem hér hefir verið sagt, er
það augljóst, að fyrsta ganga barnsins
eru gæfuspor þess eða ógæfu.
Garðyrkjumaðurinn annast ungu
plönturnar í garðinum sínum. Hann
vökvar þær umhyggjusamlega eftir
þörfum, ver þær illgresi meðan þær
(T*
Kaupið
Stærsta,
fjölbreyttasta
og útbreiddasta
blað landsins
með fylgiritinu
LESBÓK.
flytur allra íslenskra blatSa mest af
innlendum og erlendum fréttum og
fró(5leik, m. a. sérstakar síSur því
nær daglega um ýmiskonar nytsöm
efni, svo sem um verslun, iÖnaS og
siglingar, bókmenntir, íþróttir, land-
búnaS, aS ógleymdri hinni vinsælu
„kvennasí8u“: „KvenþjóSin og heim-
iliS“. í VíSsjá blaSsins birtast fróS-
legar og skemmtilegar yfirlitsgrein-
ar eftir merka höfunda um ýmis-
konar dagskrármál fjær og nær.
Auglýsingar
Morgunblaðsins
ná til allra.
v----------------------—