Foreldrablaðið - 01.12.1934, Page 23
9
Foreldrabiaðið
~~4H. V'"J! „l*, .V" L"'~~ .1 1,1 " M1 r-— ■ 1 1"! , 1 111 * 1 j 1 <
reyna eina leið, og hún er sú, sem lýst
hefir verið í ávarpinu hér framar í
blaðinu.
Hvað viljum við kennarar, skóia-
læknar og hjúkrunarfólk svo ræða við
heimilin, og hvaða vandamál berum við
upp við foreldrana?
Við viljum í rauninni margt, en í fæst-
um orðum: Við viljum fá hjálp ykkar
foreldra til að stuðla að heilbrigðum og
gæfuríkum uppvexti allra barna í bæn-
um og auðvitað á öllu landinu.
Við viljum samstilla krafta okkar, ást
og umhyggju foreldranna fyrir börnum
sínum hverju f yrir sig.
Við viljum koma með framréttar hend-
ur móti hverju foreldri og öllum þeim
öðrum, sem með uppeldi barna eiga að
sýsla.
Við viljum koma inn á hvert heimili
og ræða við foreldrana um börnin, um
áhugamál barnanna, nám þeirra, störf
þeirra, hversdagsháttu þeirra, leiki
þeirra og heilbrigði þeirra, andlegt og
líkamlegt. Á þennan hátt vonum við að
fá mörgu því áorkað, sem börnunum
megi verða til heilla og farsældar.
Við vonum, að foreldrarnir komi til
samstarfs við okkur og ræði við okkur
um barnið sitt.
Við vonum, að foreldrum takist að
innprenta barninu virðingu og traust á
skólanum, og að þeir og heimilin forðist
að tala um skólann eða kennarann með
lítilsvirðingu eða óvild í eyru barnsins.
Við vonum, að foreldrarnir reyni með
kennaranum að finna sem réttasta leið
að huga barnsins, og að þeir reyni að
láta áhrif og starf heimilisins jafnan
vera í samræmi við stefnu skólans. En
séu þeir óánægðir með stefnu skólans,
þá reyni þeir að ná samstarfi við skól-
Unga ísland er stsersta og f jölbreytt-
asía barna- og unglingablað landsins.
Foreldrar!! Leyfið börnum yðar að
kaupa Unga jsland.
Verð aðeins kr. 2,50 árg.
■■■MMaaMHnnMnnnHni
ann og fá rétting þess, sem þeim þykir
miður fara.
Við vonum, að foreldrarnir gefi kenn-
urunum og skólastjórum allar þær upp-
lýsingar um börnin, sem orðið gætu til
þess að betri árangur næðist af skóla-
starfinu, sérstaklega ef um vangæf börn
er að ræða.
Við vonum, að foreldrarnir hjálpi
skólanum til að temja börnunum fagra
umgengnisháttu, hreinlæti og fegurðar-
smekk. Höfum það hugfast, að hverjum
manni líður betur, og hann verður ham-
ingjudrýgri, ef hann temur sér hrein-
leik og fegurðarþrá.
Við vonum, að foreldrarnir hjálpi
skólanum til að kenna börnunum ást á
lífinu, sem þau lifa óg á lífinu umhverf-
is þau, á dýrunum og á lííi í hverri
mynd. Ekkert eflir meir göfuga skap-
gerð barnsins en þetta.
Við vonum, að foreldrar hjálpi skól-
anum að leggja kapp á að kenna börn-
unum hreint, óbjagað og fagurt mál, og
temja þeim skýra hugsun.
Hér skal nú staðar numið, og þó er
fátt eitt talið af sameiginlegum vanda-
málum heimila og skóla.
Eg' mun nú framvegis í Foreldrablað-
inu ræða um einstök atriði nánar, sem
mér þykja verulega máli skipta, en sem
eg vona, að heimili og skóli fái áorkað,
ef báðir aðilar taka af alúð höndum sam-
an. —•
Jón Sigurðsson,