Foreldrablaðið - 01.12.1934, Page 29

Foreldrablaðið - 01.12.1934, Page 29
Foreldrablaðið 15 engar fyrirbænir, hér dugar ekkert nema skítur“. — Oft hefir verið talað um það, að eitthvað þurfi að gera fyrir hinn at- vinnulausa unglingafjölda í þessari borg. En hefir verið komið að raunveru- leikanum sjálfum? Nú er vakin alda, til þess að reyna að koma á námskeiðum fyrir atvinnulausa pilta, er komið geti fljótlega að hag- kvæmum notum. Sótt hefir verið um það til skólanefndar að fá lánaðar smíða- stofur skólanna til smíðanámskeiða. Flestir drengir hafa lært þau handbrögð í barnaskólunum, að líklegt er, að þeir geti strax smíðað gagnlega og seljan- lega muni. Er hugsað, að nú þegar geti byrjað 25—30 piltar og vonir hafa stað- ið til þess, að hægt væri að hafa ein- hvern basar á mununum, ef til vill jóla- basar, svo að piltarnir hefðu þrefaldan ávöxt: vinnugleðina, aura fyrir vinnu sína og sæju einhvern tilgang í tilver- unni. Þetta er aðeins fyrsta skrefið að stórri hugmynd. í þessari borg verða að rísa upp vinnustofur, eins og í öðrum menn- ingarborgum, þar sem vinnandi ungling- ar starfa frá morgni til kvölds og fram- leiða fallega og gagnlega muni, ekki að- eins á þessu sviði, heldur ýmsum öðrum. Nokkrar krónur hafa safnast, til þess að standast straum af efniskaupum og kennslu, svo að piltarnir þurfi ekkert að leggja fram, nema vinnuna. Vonandi bregðast bæjarbúar vel við og styrkja þessa starfsemi með því að kaupa eitthvað af slíkum hlutum, þegar þeir verða til sölu. — Þetta er aðeins vísir, sem á að Verða að mérkilegri menningarstarfsemi. Vér stöndum hér gagnvart djúpri al- vöru, iðjuleysi unglinga, sem einstakl- AIÞÝÐU6LAÐIÐ er fyrst með allar fréttir, inn- lendar og erlendar. Það er eina blaðið, sem hefir sérstaka frétta- ritara í Kaupmannahöfn og London, sem síma því daglega (Kaupmannahöfn), og allt þegar stórtíðindi eru (London). Alþýðublaðið er stærsta dagblað landsins og kemur út alla daga vikunnar, SUNNUDAGSBLAÐ Alþýðublaðsins kemur út á hverjum sunnudegi, fróðlegt og skemmtilegt. Það flytur sögur, frásagnir, greinir, kvæði, mynd- ir og skrítlur. Alþýðublaðið kostar 2 krónur á mánuði, 5 krónur á ársfjórð- ungi, ef greitt er fyrir fram. Allir, sem gerast kaupendur nú fá Hvað nú — ungi maður? fyrir 3 krónur, og S U N N U- DAGSBLAÐIÐ frá upp- hafi í kaupbæti. Gerist áskrifendur að Alþýðublaðinu í dag.

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.