Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 5

Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 5
Foreldrablaðið 4. ár 15- desember 1937. 1. blað Aðalsteinn Sigmundsson: Breyttir starfshættir. (Eftirfarandi grein er miðkafli úr langri ritgerð, sem ég skrif- aði eftir tilmælum færeyskra skólamanna s. 1. vetur. Var hún prentuð neðanmáls í Tingakrossi í sumar, en er nýkomin út sér- prentuð, á kostnað færeyska kennarafélagsins). Það eru tvær ástæður, sem einkum knýja fram þá stefnubreytingu, sem er að gerast í öllum starfsaðferðum og innra lífi skólanna, víða um heim. — Þetta tvennt er: Ný þekking á sálar- lífi og eðli barna, og breyttar kröfur lífsins til þeirra ungmenna, sem skól- arnir skila út í það. Barnasálarfræði og uppeldisfræði í vísindalegri merkingu eru mjög ung- ar fræðigreinar. Það er fyrst á síðustu árum, að vísindalegar tilraunir og rannsóknir hafa leitt menn til eigin- legrar þekkingar og verulegs skiln- ings á sálarlífi og eðli barna. Menn héldu áður, að börnin væru að- eins smækkuð útgáfa af fullorðnu fólki, með sama eðli og sömu eigin- leikum, aðeins í smærri stíl, og með minni þekkingu og reynslu. Nú vita menn, að börnin hafa sitt eigið eðli og sitt sérkennilega sálarlíf, sem hlýtir nokkuð öðrum lögum en sálar- líf fullorðinna manna, og breytist eft- ir aldri og þroska. Það liggur í augum uppi, að það er hrein og klár tilviljun, ef vinnuaðferðir, sem myndazt hafa í skólunum fyrir öldum síðan, fara ekki fullkomlega í bág við þá þekkingu, sem rannsóknir síðustu tíma hafa leitt í ljós á barnseðlinu. Þessar aldagömlu starfsaðferðir hefir vaninn helgað og fest í skólunum, svo að mjög er óhægt að losna við þær, þegar ljós nýrrar þekkingar hefir gert nátttröll þeirra að steini. Það er alstaðar háskalegt, að taka helgi vanans fram yfir helgi þekkingarinnar. En hvergi er það háskalegra en í skólamálum og í með- ferð mannlegrar æsku, þess viðkvæm- asta og merkilegasta, sem jörð vor á til. Þar er það að taka dauðan stein- gerving fram yfir ungt og frjótt líf. Vinnubrögð hinnar nýju skólastefnu eru sniðin í samræmi við þekkingu á barnseðlínu, til að knýja fram ger- breytingu á vinnubrögðum skólanna. Lífið gerir aðrar og fjölþættari kröfur til manna nú en það gerði fyrr, á þeim tímum, sem skólarnir sköpuðust og vinnuaðferðir þeirra féllu í farvegi. Bkólar nútímans verða að vinna með það fyrir augum, að búa æskumenn undir að lifa lífi 20. aldar manns, við

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.