Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 17

Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 17
FORELDRABLAÐIÐ 13 verið ýmist einhliða eða gagnkvæm, eða sambland af hvorutveggju. Gagnkvæm er sú virðing, sem jafn- aldrar og jafningjar bera hver fyrir öðrum. En því meiri sem munur er á aldri eða aðstöðu manna, því líklegra er, að hinn yngri eða umkomuminni beri einhliða virðingu fyrir hinum. í einveldisþjóðfélagi gerir einvaldinn venjulega þá kröfu til þegna sinna, að þeir líti upp til hans eins og full- kominnar og óskeikullar veru, og jafnvel, að hann sé tilbeðinn sem guð. Sama máli gegndi um ættarhöfð- ingja í fornaldarþjóðfélögum, sem áttu ráð á lífi og limum ættbálksins. í slíkum þjóðfélögum er venjulega röð af virðingarþrepum, hvert upp af öðru. Og því naumast um annað en einhliða virðingu að ræða, virð- ingu hins minni máttar fyrir drottn- aranum. En ýmsar hinna æðstu dyggða á mælikvarða vorra tíma, eins og réttlætistilfinning, sannleiksást og orðheldni, þroskast torveldlega, nema þar sem jafnréttháir einstaklingar geta óhindrað skipzt á sjónarmiðum og skoðunum. Ungum börnum er eðlilegt og hollt að bera skilyrðislausa virðingu fyrir fullorðnu fólki, einkum foreldrum sínum. Þau líta á foreldrana eins og óskeikula, halda að þeir geti allt, viti allt og að allt, sem þeir segja og gera, sé satt og rétt. í essi afstaða smá- barnanna hefir mikið uppeldislegt gildi, en hún leggur fullorðna fólk- inu þær knýjandi skyldur á herðar, að vanda framkomu sína og um- gengni við börnin. Smám saman, eftir því sem börn- in eldast og þroskast, breytist viðhorf þeirra gagnvart fullorðna fólkinu, Séra Magnús Helgason: Skóíaræðtír og onntír eríndí jólagjöí lianda kztu vinum yðar Fæst hjá bóksölum.

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.