Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 27
FORELDRABLAÐIÐ
23
Steinþór Guðmundssou:
Að ganga
menntaveginn.
Á vori hverju er háð inntökupróf í
Hinum almenna menntaskóla í Rvík.
Oft og einatt eru það nærfellt 100 ung-
menni, sem prófið þreyta, langflest
skólabörn úr Reykjavík. Um leið og
börnin Ijúka burtfararprófi sínu við
barnaskólana, gerir fast að því V5
hluti þeirra tilraun til að opna sér leið
að framhaldsnámi í menntaskólanum,
eða í gagnfræðaskóla þeim, er síðar
skilar nemendum sínum útbúnum til
inngöngu í efri deildir menntaskólans.
I hvert sinn, er prófsúrslit eru kunn-
gerð, kemur það í ljós, að allmikili
hluti, venjulega ekki minna en %
hluti allra, sem undir prófið ganga,
falla í gegn. Samt sem áður verða það
árlega 70—80 ungmenni, sem stand-
ast inntökupróf í Menntaskólann.
En ekki er nú allur vandinn leyst-
ur hjá þeim börnum,sem hlotið hafa
þá stigatölu, sem til þess þarf að stand-
ast prófið. Þó Menntaskólinn haldi
prófið og kveða upp dómana, þá tekur
Skemmtanirnar verða sem hér segir í skóla-
húsinu við Baugsveg 7:
Sunnudaginn 19. des. kl. 4—7,30 (16—
19,30) : Öll börn í 7 ára bekkjum.
Mánudaginn 20. des. kl. 3—7 (15—19) :
Börn úr 8.—9 A, 8.—9. B, 8.—9. C, 10 ára
B og 10 ára C.
Mánudaginn 20. des. kl. 8—11% (20—
23%): Börn úr 10 ára A, 11 ára bekk, 12
ára bekk og 13 ára bekk.
Öll börnin verða boðuð með kortum, sem
gildir sem aðgöngumiði.
hann aðeins á móti 25 nemöndum á
ári. 1 þann hóp eru þau börn valin,
sem hæsta einkunn hljóta við prófið.
Engin önnur sjónarmið komast þar að.
Nú má að vísu segja sem svo, að
þau börnin, sem ekki komast í Mennta-
skólann, séu ekki á flæðiskeri stödd,
ef þau bara standast prófið. Því til er
í borginni menntastofnun, sem stend-
ur þeim opin, en það er Gagnfræða-
skóli Reykvíkinga. Um þann skóla er
ekki nema gott eitt að segja. Ég hefi
enga ástæðu til að gera upp á milli
kennslunnar þar og í Menntaskólan-
um, og nemendurnir njóta sömu rétt-
inda að námslokum. En eitt atriði er
þó, sem skapar ærinn aðstöðumun, og
það er skólagjaldið. Gagnfræðaskól-
inn er einkastofnun, og verður því ó-
hjákvæmilega að taka.skólagjald, 150
krónur á ári, en Menntaskólinn er
ríkisskóli, og lætur kennsluna í té end-
urgjaldslaust. — Þetta er nægileg á-
stæða til þess að kapphlaupið um
hæstu einkunnirnar við inntökuprófið
verður æðisgengnara en dæmi eru til
við próf á þessu aldursskeiði. Árlega
verða fátæku börnin, fleiri eða færri,
að neita sér um framhaldsnámið, fyr-
ir þá sök eina, að prófseinkunn þeirra
fleytti þeim ekki upp í úrvalshópinn,
sem Menntaskóiinn tekur að sér, og
veitir ókeypis kennslu.
Við þessu væri nú ekki svo ýkja
mikið að segja, ef það væri öruggt, að
útvalning hinnar háu menntastofn-
unar segði alveg ótvírætt til um það,
hverjir úr unglingnahópnum væru lík-
legastir til árangurs við vísindalega
námsiðkun. Hór er verið að velja lið
til æðstu mennta með þjóð vorri. —
Hvorki örbirgð eða auður á að lyfta
ungmennunum upp í þessar raðir.