Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 23

Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 23
FORELDRABLAÐIÐ 19 Vigdís G. Blöndal: Reglusemi. Eitt af því marga, sem okkur Is- lendingum er ábótavant um, er reglu- semi, og sjást þess glögg merki á börnunum. Það er eitt af því erfiðasta, þegar hingað koma börn, sitt úr hverri áttinni, að kenna þeim reglusemi, þ. e. fá þau til þess að láta hlutina á á- kveðinn stað. Það er algengt að sjá það, þegar barn kemur inn frá leikjum, úr skól- anum eða annars staðar að, að það hendir ytri fötunum af sér hingað og þangað, jafnvel á gólfið. Kápunni í einn staðinn, húfunni í annan, bókinni í þriðja o. s. frv., ef þessu er þá ekki blátt áfram hent utan dyra. Þar liggur það, þangað til húsmóðirin tínir það saman og lætur hvað á sinn stað, ef því er þá ætlaður ákveðinn staður. Þegar næst á að nota hlutina, er allt týnt. Þá hefst leitin. Grunur minn er, að ein orsökin til þess, að barnið kem- ur of seint í skólann, sé við og við sú, að leita þurfti að: bók, húfu eða ein- hverju öðru, áður en lagt var af stað. Það er mjög áríðandi, að barnið fái ungt ákveðinn stað fyrir allt, sem því tilheyrir, föt, bækur og leikföng. En það er ekki fullnægjandi að staðurinn sé til, það verður að ganga ríkt eftir því, að barnið noti hann, láti ætíð hvern hlut á sinn stað. Áður en barnið fer út, er það ræki- lega áminnt um, að ganga vel frá föt- um sínum, er það komi inn aftur. — Þrátt fyrir það, hendir það öllu sínu í hverja áttina, og fer að leika sér. Þá ríður mjög á því, að móðirin, eða sá, sem hefir umsjá með barninu, tíni ekki saman eftir það. Hún tekur barn- ið sér við hönd, bendir því á hvað það hefir vanrækt, lætur það sjálft taka hvern hlutinn eftir annan, og láta hann snyrtilega þar sem hann á að vera. Þetta endurtekur sig ef til vill dag- lega — já, — oft á dag, vikum og mánuðum saman, en það er áríðandi að láta aldrei undan, láta barnið aldrei komast upp með að vanrækja þessa sjálfsögðu skyldu. Það er áreiðanlegt, að fyrirhöfnin, og hún er oft mikil, marg-borgar sig. Barninu lærist smátt og smátt reglu- semi, — og þá þarf ekki að leita leng- ur að hverjum smá hlut. Ég veit, að skólinn og heimilin hafa einlægan vilja á að hjálpa börnunum í þessu sem öðru, sem má verða þeim til heilla. Þetta verður að taka föstum tökum. Og umfram allt verða þeir eldri að ganga á undan með góðu eft- irdæmi í þessu sem öllu öðru. Nýtt bókmenntafélag. Síðastliðið sumar stofnuðu nokkrir rithöf- undar og menntamenn nýtt bókmenntafélag með nafninu „Mál og menning". Á félag þetta að gefa út vandaðar bækur við alþýðuhæfi. ■Eru fyrstu á'rsbækur þess nýkomnar út, „Vatnajökull“, eftir dr. Niels Nielsen, og 3. bindi af riti því, sem nefnist „Rauðir. penn- ar“, sem þegar er alþekkt og vinsælt. Bækur þessar fá félagsmenn fyrir árgjald- ið, kr. 10,00, en bókhlöðuverðið er nálega helmingi hærra. — Upp úr nýári kemur svo fyrsta bók næsta árs, ,,Móðirin“, heimsfræg saga eftir Gorki. Undirtektir þær, sem félagið hefir fengið, sýna bezt þörfina fyrir það. En félagsmenn eru þegar yfir 1600, áður en fyrstu bækurn- ar koma út.

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.