Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 43

Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 43
FÖRELDRABLAÐÍÐ Öð Aðalsteinn Sigmundsson: »Skrópar«. Það mun kunnugt vera öllum les- öndum þessa blaðs, að hér á landi og í öllum menningarlöndum eru öll börn skólaskyld, þ. e. lög og reglu- gerðir skylda þau til að sækja skóla sinn á vissu aldursskeiði, allar stundir þeirrar kennsludeildar, sem þau eru í, nema gild forföll (veikindi) banni, eða leyfi til fjarvistar komi til. Þetta er til þess gert, að tryggja þjóðfélag- inu, svo sem verða má, að allir þegnar þess hljóti þá þekkingu og þann þroska, sem þjóðfélagið þykist geta komizt af með, að þeir hafi minnst. Það er líka alkunnugt, að víða í skólum, og eigi sízt hér í Austurbæj- arskólanum', er mjög mikið til þess gert, að börnunum geti liðið sem allra bezt í skólanum, — að starfið þar geti verið sem ánægjulegast, og að börnin finni, að þau hafi þangað eitthvað að sækja. Margir kennarar leggja á sig ærna aukavinnu, og jafnvei kostnað af rýrum tekjum, til þess að gera skóla- starfið svo aðlaðandi og ávaxtaríkt, sem kostur er á. Ég held að engum, sem um hugsar, geti þótt undarlegt, þó að kennurum með slíkri aðstöðu þyki leiðinlegt, og jafnvel töluvert hart, að þurfa að eyða tíma sínum og athygli í að stríða leið allar óskir um eftirlit með barna- fræðslu í landinu, jafn hrópandi þörf og á því er þó. Eða væri ekki nær að bæta við háskólann kennara í upp- eldisfræði, en fjórða kennara í guð- fræði? við það, sem í skólunum er nefnt „skrópar“ . Það nefnast „skrópar“, ef nemandi mætir ekki í kennslustund, er honum ber að sækja, án þess að hafa gild forföll eða leyfi til fjarvistar. Slík til- felli eru ekki sjaldgæf í skólum bæj- arins. En einkum tíðkast þau í kennslu- stundum, sem slitnar eru frá aðal- námstíma barnanna, svo sem oft er um kennslustundir í íþróttum, handa- vinnu, söng o. fl. Stundum ber líka við, að börn vantar heila kennsludaga, án íorfalla. Það liggur í augum uppi, að „skróp- ar“ eru stórum skaðlegir fyrir þau börn, sem gera sig sek um þá. Þau missa við þá nokkuð af því námi, sem þeim ber að fá. Og við að smeygja sér hjá að sækja kennslustundir, sem þeim ber skylda til að vera í, venjast þau á Allir unglingar þekkja Aðalstein Sigmundsson. Enginn efast um að bókin hans: Jerln tíííMím“ er bezta jólagjöfin handa unglingum á öllum aldri. Fœst i öllum bókaverzlunum.

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.