Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 26

Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 26
22 FORELDRABLAÐIÐ heimilinu við lestrarnám barnsins. Sama er að segja um reikningskennslura. Greindarpróf var í haust látið fara fram á nokkrum þeim börnum skólans, sem kennar- ar óskuðu eftir sérstökum uppiýsingum um, og nokkrum fleiri. Eru slík próf hin bezta leiðbeining fyrir skólastjóra og kennara við röðun í deildir og við kennslu. Ármann Hall- dórsson magister framkvæmdi prófunina. — Verða slík próf notuð framvegis, að minnsta kosti við innritun barnanna. Sundnámskeið fór fram í sundlaugunum fyrir börn í 10—12 ára bekkjum skólans frá byrjun október til 15. nóvember. En fullnað- arprófsbörnin fá námskeið í sundhöllinni síð- ar 1 vetur, og verður þeim síðan gert að skyldu, að taka burtfararpróf í sundi. Smíðakennsla drengja í efri bekkjum skól- ans fer fram niðri í bæ, vegna húsnæðisleys- is, og einnig leikfimi drengja í sömu bekkjum. MatreiSslunámskeiS fullnaðarprófstelpna fer fram í vor frá miðjum maíi til 20.. júní eins og verið hefir að undanförnu. Garðyrkjunám barna. Mikil umræða var um það, að stofna til garðyrkjunáms fyrir börn í skólanum á síðastliðnu vori. En af því gat þó ekki oi'ðið. En seinna i vetur mun skólinn kveðja foreldra eins aldursflokks barna i skólánum til viðræðu um þetta mál. Og er stór nauðsyn á, að öll börn skólans fái fram- vegis námskeið í garðyrkju. Matarhlé er ekkert i skólanum í vetur, eins og undanfarna vetur. Er vonandi að foreldr- ar virði það á betra veg, meðan húsnæði skól- ans er svona takmarkað, enda eiga mörg börn- in langt heim. En ég vona, að mæðurnar reyni að láta barnið, sem missir matartíma sinn, fá heita máltíð, þegar það kemur heim úr skól- anum. Mjólk verður í vetur gefin öllum börnum skólans, og 1 ý s i öllum, sem foreldrar óska að fái það í skólanum. Er þess vænzt, að for- eldrar hvetji börnin til að taka lýsi í skólan- um, og sendi skriflega tilkynningu í skólann, ef þau vilja ekki að barnið fái lýsi í skólanum. Ungmennafélag hafa nemendur efstu deild- ar skólans frá s.l. vetri, stofnað með sér. I félaginu eru nú 31 félagi, drengir og stúlkur. Formaður félagsins, Einar S'tefánsson frá Álfabrekku, hefir sent skólastjóra eftirfar- andi skýrslu: „Byrjandi“ heitir nýtt ungmennafélag, sem stofnað er af nemöndum úr Laugarnes- skóla. Tilgangur félagsins er, að efla kynn- ingu á landinu okkar og fólkinu, sem á því býr. Félagið vinnur að þessu markmiði sinu með fundahöldum, ferðalögum, lestri á ferðasögum og góðum bókum. Allir eru með- limir þess á aldrinum 14—16 ára. Félagið hefir gengið í Samband Ungmennafélaga Is- lands“. Laugarnesskólinn mun fylgjast af á- huga með starfi félagsins og styðja það eftir mætti. Fátt er svo göfugt sem fögur áform ungmenna, sem bindast samtökum um að irma af höndum göfug hlutverk fyrir þjóð sína, félag sitt og þroska hvers einstaks fé- laga. Barnaskólinn við Skerjafjörð. Eftir því sem næst verður komizt, eru nú 350 börn á skólaskyldualdri, búsett í Skild- inganesi og Grímsstaðaholts byggð. Af þeim eru nú í barnaskólanum 265 börn. Fleiri börnum er ekki hægt að taka á móti, vegna skorts á skólahúsnæði. S'kólinn starfar í 12 deildum, og hefir aðal- bækistöð sína við Baugsveg 7, en auk þess er leigt fyrir 3 deildir á Þormóðsstöðum. Um leikfimi. Skólinn leigir fyrir 14 stundir á viku i íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar. Þar af eru 6 stundir á tímabilinu kl. 12—1 (eða 12—13), matmálstíma. Þetta veldur nokkrum óþægindum, en við hurfum þó að þessu ráði, þegar aðeins var að velja um þennan tíma dagsins eða tímann 6— 7, er við töldum frágangssök að nota, er í hlut áttu 8—9 ára börn. Jólaskemmtanir. Við höfum hugsað okkur, að skólinn efndi til jólaskemmtana fyrir skólabörn, áður en skólinn hættir nú fyrir jólin. Vegna fremur litilla húsakynna, verður að skipta börnunum í flokka eftir aldri, og er áríðandi, að einungis komi þau börn á skemmt- anirnar, sem boðuð eru í hvert skipti.

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.