Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 7

Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 7
FORELDRABLAÐIÐ 3 lesa og skrifa. Með öðrum orðum: Hann hefir nauðsynlegustu undirbún- ingskunnáttu til þesss að geta sótt sér þekkingu í bækur og unnið með henni. Þegar hann er kominn inn í skólastof- una, verður hann að gera svo vel og sitja í sæti sínu prúður og stilltur og taka ósköp vel eftir því, sem kennar- inn segir, og svörum hinna barnanna við spurningum kennarans. Flesta tíma má hann ekkert hafa handa á milli, heldur verður hann að sitja að- gerðalaus. Nú er lítill 10 ára snáði svo meistaralega gerður, að hann á með fátt jafnörðugt og það, að vera að- gerðalaus. Eðli hans er, að hafa eitt- hvað handa á milli, fást við eitthvað, starfa og rannsaka. Og líkami hans þarf hraða blóðrás, öra efnaskiptingu, mikla hreyfingu. Skólinn misþyrmir drengnum og eðli hans þarna með tvennu móti fráfyrsta degi :Lætur hann fá aðgerðaleysi í staðinn fyrir lifandi starf, og kyrrsetu í staðinn fyrir næga og óþvingaða hreyfingu. Með þessu er gengið á snið við þekkingu nútím- ans í sálarfræði og heilsufræði. Og sú æfing, sem orðanámið með aðgerða- ieysinu og kyrrsetunni veitir, ríður í bág við framtíðarþarfir hvers manns, því að hver heilbrigður æskumaður á fyrir höndum að vinna, og þarf því að vera til þess þjálfaður. — Nýja skóla- stefnan vill veita nemöndum ýmiskon- ar þekkingu gegnum lifandi starf, þar sem heili og hönd vinna saman, lík- aminn allur á kost á þeirri hreyfingu, sem hann má ekki án vera, og æsku- maðurinn allur, líkami og sál, fær þjálfun og stælingu, líkt og íþrótta- maðurinn, sem reynir alhliða á vöðva sína. Jóla- og nýjárskveðjur. IJm næstu jól og nýár tekur Ríkisútvarpið til flutnings jóla og nýárskveðjur, með sömu kjör- um og verið hefir undanfarin ár. Slíkar kveðj- ur mega ekki sendast til annara landa gegnum útvarpið, og eigi manna á milli innan lögsagn- arumdæmis Reykjavíkur og Hafnarf jarðar. Ríkisútvarpið.

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.