Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 15
FORELDRABLAÐIÐ
11
um. — Aðrir afgreiðslumenn töldu lík-
legt, að blöðin biðu dálítið tjón fyrst
í stað við breytinguna, en það myndi
jafna sig, er frá liði, og blaðasalan
kæmist í annað horf.
Af þessum upplýsingum, þótt óná-
kvæmar séu, er bersýnilegt, að blaða-
sala barna innan við 14 ára aldur, er
ekki nein teljandi tekjulind fyrir þau.
Nóg er og til af atvinnulausum ung-
lingum 14 ára og eldri, sem selt gætu
blöðin, sem og ýmsu fötluðu fólki,
sem enga atvinnu hefir, svo að engin
hætta er á því, að blöðin kæmust ekki
á markaðinn. Þegar börn hættu að
selja blöð, myndu og unglingar fúsari
til þess, því að þeim þykir oft skömm
að því að selja blöð, af því að þau
yngri selja þau líka.
Niðurstaðan verður þá þessi: Blaða-
sala á götum úti er mjög óheppilegt
starf fyrir börn yngri en 14 ára, eink-
um af siðferðilegum ástæðum. Sölu-
launin, sem börnin fá fyrir blaðasölu
á götunum, nema sáralítilli upphæð
og skiftast á milli margra. Sé ég því
engar skynsamlegar ástæður, sem rétt-
læta blaðasölu barna yngri en 14 ára
hér í borginni.
Vér viljum benda yður á
SUÐUR HEIÐAR
eftir Gunnar M. Magnúss,
sem fegurstu jólagjöf til æsku-
lýðsins.
!»*■> >*♦ > ’» *l* ♦+♦ ♦»♦ ♦»♦ ♦«» ♦+♦ ♦+» V ->»•* >+♦ K* *«* '*** *•* *•
Allskonar:
ÚTGERÐARVÖRUR
MÁLNIN GARVÖRUR
VÉLAÞÉTTIN GAR
VERKFÆRI
VERKAMANNAFATNAÐUR
SJÓFATNAÐUR
REGNKÁPUR
B e z t og jafnan ódýrast hjá
Símnefni: Ellingsen, Reykjavík.
Ef
þér viljið
fylgjast með utan
lands og innan
þd
kaupið
Nýja Dagblaðið