Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 19

Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 19
ÍFORELDRABLAÐIÐ 15 barnanna fyrir foreldrunum. Tökum dæmi: Sumum börnum hættir við að vætá og óhreinka buxur fram eftir öllum aldri. Þeim er það venjulega ósjálfrátt, og foreldrarnir eiga senni- lega oftar sckina en börnin sjálf. Börnunum er þetta mjög viðkvæmt mál, og þau geta orðið eins og hel- særð af blygðun og smán, ef á það er minnst í ókunnugra viðurvist, einkum í viðurvist jafnaldra. Auð- velt er því að geta sér til, hvílík á- hrif skilnings- og samúðarleysi í þess- um og þvílíkum málum getur haft á virðingu barnsins fyrir foreldrinu. Foreldrið, hinn sjálfsagði verndari og vörður alls réttlætis í huga barnsins, verður máske til þess, með gáieysi sínu, að gera barnið að athlægi í augum jafnaldra og vina. Ýmsir ,,smámunir“, af þessu tagi, sem full- orðna fólki gefur stundum engan gaum að, geta skilið eftir varanleg og djúp spor í sálum viðkvæmra barna, og haft ótrúlegustu áhrif á sambúð þeirra við fólkið á heimilinu. Hreinskilni, sannsogli og réttlæti er foreldrum áríðandi að beita gagn- vart börnum sínum, ekki aðeins til fyrirmyndar, til þess að temja þeim þessar sömu dyggðir, heldur einnig til þess að halda virðingu þeirra. Eins og þegar er bent á, þá eru ungu börnin viss um að foreldrar þeirra viti allt, að þau segi ávalt satt og geri allt rétt. Því er eðlilegt að vonbrigði þeirra verði mikil, ef þau komast að því, að pabbi eða mamma hafi vísvit- andi blekkt þau, sagt þeim ósatt eða gert þeim rangt til. Mörgum foreldr- um mun hætta við að blekkja börn sín og segja þeim ósatt um viðkvæm efni, eins og t. d. kynferðismál. Er það tvímælalaust á misskilningi byggt. Börnunum er miklum mun hollara að fá vitneskju um þessi efni á prúðmannlegan hátt hjá foreldrum sínum, en að kynnast þeim í gegn um klám og hrópyrði götunnar. Rúmið, sem ég hefi yfir að ráða í blaðinu er nú þrotið. En margt er enn ótalið, sem að þessu máli lýtur, og sem ég hafði raunar ætlað að minnast á. Að lokum vil ég leggja á- herzlu á það, að ég lít svo á, að þeir foreldrar hafi mikið og ómetanlegt tjón beðið, sem glatað hafa virðingu barna sinna, að meira eða minna leyti, og þó hafa börnin vissulega misst meira. Margir foreldrar gætu efalaust komið í veg fyrir þetta ó- bætanlega tjón með sívakandi um- hyggjusemi og með því að kynna sér ýmislegt af því, sem uppeldisvísindi vorra tíma hafa til málanna að leggja. Þjóðviljinn Dagblað allra, sem vilja vinna að frelsi og framförum þjóð- arinnar. Kemur út alla daga nema mánudaga. — Askriftarverð á mánuði TVÆR KRÓNUR, Gerist áskriíendur! Afgreiðsla: Laugaveg 38.

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.