Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 9

Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 9
FÓRELDRABLAÐIÐ 5 á löngum tíma, sundurslitið með lex- íum úr öðrum bókum inn á milli og samhliða. Þannig silast hann gegnum kennslubókina sína, oftast hvað eftir annnað — les hana og staglar í sund- urlausum bútum, eftir utanaðkomandi skipun, á tímum, þegar áhugi hans og þarfir kalla ekki á efni hennar. Þetta getur ekki annað en haft þær afleið- ingar, að drengurinn verði hundleiður á kennslubókunum sínum, og sú leiði yfirfærist jafnvel á aðrar fræðibækur. Ætli vér þekkjum ekki dæmi þess, les- endur góðir ? Hverjum nútíðarmanni er megin- nauðsyn að geta komið fyrir sig orði í skrifuðu máli, nokkurnveginn skýrt og skammlaust. Aðferð gömlu skóla- stefnunnar til að kenna drenghnokk- anum, sem vér fylgjum, þetta, er sú, að láta hann skrifa stíla í fastskorð- uðum réttritunartímum, sem slitnir eru frá öðru námi og starfi skólans. Hann skrifar sögur eða sundurlausar málsgreinar, sem hnoðað er saman ut- an um vandrituð orð, eftir upplestri kennarans, eða þá að hann endursegir efni og orð, sem kennarinn hefir tugg- ið í hann. Hann er æfður í að skrifa annarra manna hugsanir með annarra manna orðum. Þau orð eru fullorðinna manna mál, sem honum er óeðlilegt og torskilið, og kemur inn hjá honum þeirri skoðun, að ritmál sé allt annað en eðlilegt mál, og það, að setja fram hugsanir sínar í ritmáli, sé galdur, sem honum sé ofvaxinn og óskiljan- legur. Það, sem lífið heimtar, að drengurinn læri og nái leikni í, er að velja sínum eigin hugsunum orð og rita sín eigin orð rétt og sæmilega. Þetta fæst ekki með því, að barnið hermi orð annarra Jólabækur handa börnum SÖGUR lianda börnum og ungling- u.m; eftir sr. Friðrik Hall■ grímsson. I. hefti kr. 2,00. II. —Y. hefti kr. 2,50 hvert hefti. BÓKAVERZLUN SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR og Bókabiið Austurbæjar B. S. E., Laugaveg 34. manna eftir, kannske skilningslítið. Heldur fæst það með þjálfun í að semja sjálfur — hugsa sjálfur, velja sjálfur hugsunum sínum orð. Það er meira vert, að velja hugsunum rétt orð, en að velja orðunum rétta stafi. Til þess síðarnefnda er stafsetningar- orðabók sjálfsagt hjálpartæki, og æf- ing í að nota hana veitir leikni, sem lífið heimtar —• leikni í að vera fljót- ur að nota stafrófsröð og fletta upp í bók á því, sem fræðast þarf um. Ég verð að fara fljótt yfir sögu í stuttri blaðagrein, enda ættu þessi dæmi að nægja til að sýna, að viðtekn- ar venjur í starfsaðferðum skólanna koma ekki heim við þær kröfur, sem þekking og þarfir nútímans gera um afköst skólanna. Nýja skólastefnan lítur ekki á það sem hlutverk skólanna, að hlaða fróð- leik á minni nemandans — birgja hann

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.