Foreldrablaðið - 15.12.1937, Page 10
6 FORELDRABLA ÐIÐ
upp með þekkingarmola, sem geym-
ast eiga í minni hans, þar til hann
kann að þurfa að nota þá, eins og hey
geymist í hlöðu — ef þeir gleymast
þá ekki og týnast. Nýju skólastefn-
unni er það ljóst, að börnin eru verur
í sköpun, mótun, vexti. Að þau búa
yfir miklum hæfileikum, óljósum og
blundandi, og þessa hæfileika þarf að
finna, vekja og veita þeim tækifæri
og hvöt til stælingar. Hlutverk skóla-
starfsins er líkt og hliðstætt þeim æf-
ingum, sem íþróttamaður iðkar til að
verða fær í íþrótt sinni. Við æfing-
una stælast vöðvar hans, og hann æfist
í að beita ráttum vöðvum til hverrar
hreyfingar, en með því nær hann valdi
yfir líkama sínum og eykur afkasta-
getu hans. Slíkar æfingar fyrir anda
og líkama nemandans og alla hæfi-
leika. hans telur nýja skolastefnan
skólastarfið eiga að vera. Af því leið-
ir, að nemandinn verður sjálfur að
vera að verki, en ekki aðgerðalítill
viðtakandi þess, sem í hann er troðið.
íþróttamaðurinn stælist ekki af að
heyra um íþróttaleikni né að sjá hana,
heldur af því, sem hann gerir sjálfur
— sjálfri áreynslunni.
Nýja skólastefnan leitast við að
veita nemöndunum sem fjölþættust
tækifæri til starfs í skólanum. Hún vill
láta huga og hönd vinna saman að því,
að brjóta til mergjar viðfangsefnin í
tilverunni kringum barnið. Nýju skól-
arnir láta börnin fá efni til rannsókn-
ar, og þá gjarna efni, sem draga að
sér hugi þeirra og áhuga. Börnin fá
til afnota bækur og önnur tæki til
rannsóknarinnar. Og ávöxtur rann-
sóknarinnar kemur sýnilega í ljós, í
teikningum, ýmiskonar handavinnu
og í rituðu máli, sem börnin afkasta.
Börnin eru þarna að verki, sem hefir
tilgang og takmark í sjálfu sér, eins
og hvert annað starf. — Þau njóta
vinnugleði, áhuga og sköpunargleði
við að framleiða sýnilega hluti. Þeim
festist ósjálfrátt í minni það, sem
minninu þykir vert að geyma, eins og
gerist í eðlilegu hversdagslífi, og er
að því leyti engu glatað af kostum lex-
íunámsins. En þau fá að auki tamn-
ingu og leikni í að leita og finna, rann-
saka og vinna, og vega og meta stað-
reyndir, greina aðalatriði frá auka-
atriðum, nota bækur og beita kunn-
áttu sinni í lestri, skrift og reikningi í
lifandi lífi. Slík leikni er hyerjum nú-
tíðarmanni meginnauðsyn.
Bókaverzlun
Guðm. Gamalíelssonar
Jólagjafir:
iSöngbækur,
Sögubækur,
Fræðibækur,
Skölabækur,
Barnabækur
og margt annað hentugt til
JÓLAGJAFA.