Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 13
FORELDRABLAÐIÐ
9
frá heimilinu og rangla um göturnar.
Hin helztu rök, sem menn hafa á
takteinum til réttlætingar blaSasölu
barna innan við 14 ára aldur eru þau,
að fátækum fjölskyldum sé mikill
styrkur að fé því, sem börnin vinna
sér inn á þennan hátt. Til þesss að fá
vitneskju um þetta atriði, sneri ég mér,
síðastliðið vor, til afgreiðslumanna
allra dagblaða í bænum og helztu
vikublaðanna. Af þeim upplýsingum,
sem afgreiðslumennirnir létu mér
góðfúslega í té, komu eftirfarandi at-
riði í ljós: 1) Blöðin eru yfirleitt borin
heim til áskrifenda af 14 ára gömlum
börnum og eldri. 2) Lausasala dag-
blaðanna er ekki nema lítill hluti af
allri sölunni hér í bænum. 3. Einn pilt-
ur selur, að sögn afgreiðslumanna
um helming allra þeirra blaða, sem
seld eru í lausasölu. Má því nærri
geta, hve sölulaun fyrir hinn helm-
inginn draga skammt alla hina blaða-
söludren’gina til samans, en tölu
þeirra, sem blaðasölu stunda nokkurn
veginn reglulega, má áætla 50—60.
Samkvæmt upplýsingum frá af-
greiðslumönnunum, mun vart meira
en 1000 eintök dagblaða seljast dag-
lega að jafnaði í lausasölu. Þar af sel-
ur einn maður nærfellt helming. Nú
er börnunum borgaðir 3 aurar af
hverju blaði í sölulaun (eða um 30%
af söluverði blaðanna), og gefur því
blaðasalan öllum þessum börnum alls
kr. 15.00 — fimmtán krónur í tekjur
daglega -— eða 25—30 aura á barn.
Lausasala vikublaðanna breytir
ekki mikið þessari niðurstöðu. Reynd-
ar er lausasala þeirra hlutfallslega
miklu meiri, eða um 75% af allri bæj-
arsölunni, eins og tvö útbreiddustu
blöðin áætluðu. En um helmingur
ER STÆRSTA BLAÐ
LANDSINS.
ER LANG BEZTA
FRÉTTABLAÐIÐ.
ER FJÖLBREYTTASTA
BLAÐIÐ.
KERAMIK, nýtízka.
KRISTALL, handskorinn.
POSTULÍN, fyrsta flokks
BARN ALEIKFÖN G.
Hvergi meira úrval.
Hvergi lægra verð,
K. Einarsson & Björnsson
Bankastræti 11.