Foreldrablaðið - 15.12.1937, Síða 24
20
FORELDRABLAÐIÐ
Frá skó 111 iinni.
—
Austurbœjarskólinn að störfum í septembermánuði 1936.
Austurbæj arskólinn.
Eins og síðasta skólaár starfar skólinn í 7
deildum, 7»—13 ára. 7—11 ára deildirnar skipt-
ast í 9 bekki hver, alls 45 bekkir, 12—13 ára
deildirnar skiptast í 8 bekki hvor, alls 16 bekki.
Eru því bekkirnir samtals 61, en það er 2
bekkjum fleira heldur en siðasta skólaár.
Fastir kennarar við skólann, að skólastjóra
meðtöldum, eru nú 42, stundakennarar eru 5.
Tala skólabarnanna er nú um 1750.
Stundvísi. — Hreinlæti.
Þess gætir nokkuð, að börn mæta ekki svo stund-
víslega í skólanum, sem nauðsynlegt er, hvort
heldur er kl. 8, kl. 9 eða kl. 13. Spurð um or-
sakir, svara börnin oftast því sama: „Klukkan
heima er of sein“ eða „klukkan heima er vit-
laus“ eða „eg vaknaði svo seint“ (Fer of seint
að sofa?) Þá eru börn, sem- mæta í skólanum
óþvegin og ógreidd. Enn er stór hópur barna,
sem ekki hafa á sér vasaklúta, en þurrka sér
um munn og nef á handarbaki eða ermi sinni,
snýta sér í bera hendina, núa svo nefslíminu
í föt sín eða sletta því í ýmsar áttir, en eins
og allir sjá og skilja, er slíkt grófur sóða-
skapur, sem ekki má þolast. Skólinn vill vin-
samlegast mælast til þess, að forráðamenn
barnanna vinni einbeittlega að því, ásamt skól-
anum, að lagfæra það, sem ábótavant er í
þessu efni.
Það er mjög þýðingarmikið fyrir framtíðar-
heill barnanna.
Glataðir munir.
Fyrir kemur, að börn glata ýmsum munum
á leiðinni í og frá skóla, eða þá í skólanum,
svo sem húfum, treflum, vettlingum eða bóka-
töskum. Einkum ber á þessu með hinar svo