Foreldrablaðið - 15.12.1937, Page 32

Foreldrablaðið - 15.12.1937, Page 32
28 FORELDRÁBLAÐIÐ er miklu hærra en nauðsyn krefur, til þess að kennarinn fái sómasamleg laun fyrir erfiði sitt. Það er mörgum foreldrum ofvaxið, að kaupa því verði inngöngu barnsins síns í Mennta- skólann, og sérlega tilfinnanlegt ef því er kastað á glæ, vegna þess að barnið hefir engin skilyrði til að veita viðtöku því fræðamagni, sem til þess þarf að standast prófið, eða a. m. k. 25 af keppinautum þess verði því yfir- sterkara í einkunnasamkeppninni. Fyrir barnaskólana er þessi undir- búningsskóli enginn aufúsugestur. Hann tætir í sundur bekkina á miðj- um námstíma, fleytir sumum nemend- unum gegnum prófið, sendir aðra til sama lands, með særða sjálfsvirðingu, í byrjun næsta skólaárs, til þess e. t. v. að fitja upp á nýjan leik um næstu áramót. Fyrir framhaldsskólana hlýt- ur slíkur ítroðningur að vera tvísýnn undirbúningur, því það eru fyrst og fremst hæfileikar, en ekki kunnátta, sem þeir verða að grundvalla starf sitt á. Börnin sjálf eiga þó allra mest í hættu. Þau geta annaðhvort oftekið sig við lærdóminn, eða misst traust á sjálfum sér, ef tilraunin mistekst. Nú er það að verða algild regla við narnaskólana hér, að sami kennari fylgi bekknum eftir ár frá ári. Það ætti því að mega nokkurnveginn treysta því, að í barnaskólanum gæti farið fram öruggast úrval úr barna- hópnum til framhaldsnáms. Að vísu liggur sú freisting fyrir, meðan fram fer þekkingarpróf við inngöngudyrn- ar til æðri skólanna, að einstakir kenn- arar geri sér það að metnaðarmáli að blekkja menntastofnunina, á svipaðan hátt og Menntaskólakennarinn gerir Tryggingarstofnun ríkisins Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu Símar: 1073 og 1074. Símnefni: Ríkistrygging. Slysatryggingardeild S júkratry ggingar deild Elli- og örorkutryggingardeild Atvinnuleysistryggingardeild

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.