Foreldrablaðið - 15.12.1937, Qupperneq 33

Foreldrablaðið - 15.12.1937, Qupperneq 33
FORELDRABLAÐIÐ 29 nú, með sínum margrómuðu afköstum við ítroðninginn. Öruggasta ráðið til að firra kennarana þeirri freistingu, er það, að afnema sem mest þekkingar- prófið. Ef ekki þykir fært að sleppa inntökuprófinu með öllu, mætti nægja prófun í óhjákvæmilegri leikni í með- ferð talna og í því að beita móður- málinu, skriflega og mun lega. Þar sem vér höfum nú eignast sérfræðing í meðferð gáfnaprófa, mætti beita þeim með, til hliðsjónar. Það er sannfæring rnin, að öllum aðilum væri það fyrir beztu, að hlíta mætti sem mest forsjá barnakennar- anna um val barna til menntaskóla- náms. Að vísu má vel vera, að kenn- arar almennt séu sem stendur ekki fyllilega þeim vanda vaxnir, af því að engar slíkar kröfur hafa verið til þeirra gerðar, og ráðleggingar þeirra í þeim efnum venjulegast að engu hafð- ar. En fái kennarinn að vita það í tíma, að barninu sá fyrirhugað fram- haldsnám í æðri skólum, þá hefir hann öllum öðrum betri aðstöðu til að rann- saka, hvort barnið er til þess fært. Að- standendur barnsins ættu að geta ráð- fært sig við kennarann um námsgáfur barnsins, áður en ákveðið er að það gangi menntaveginn. Með því móti mætti vafalaust spara mörgum von- brigði og árangurslausar fórnir. Kennarastéttin verður að reka af sér það sliðruorð, að hún geti ekki kennt börnunum þau fræði, sem þeim eru nauðsynleg til framhaldsnáms, að svo miklu leyti, sem börnunum er fært að veita þeim viðtöku, án þess að mis- þyrma sjálfum sér. En foreldrar og kennarar verða í sameiningu að krefj- ast þess, að fjárhagslegt misrétti loki ekki börnunum aðgang að mennta- brautinni, ef hugur þeirra og hæfi- leikar stefna þangað. Til þess þarf fyrst og fremst sú breyting á að kom- ast, að til inntökuprófs þurfi engrar annarar fræðslu að krefjast, en þeirr- ar, sem barnaskólarnir láta í té, enda taki þeir fullt tillit til þess undirbún- ings, sem menntskólum sérstaklega er nauðsynlegur. Samvinna um þessi mál milli skóla og heimila, mundi ó- sjálfrátt leiða til þess, sem er annað meginatriði þessa máls, að hætt yrði að líta á þau börn, sem öðrum fremri, er „ganga menntaveginn". Lífið á ótal leiðir aðrar til mennta og manndóms- þroska, og þá ekki síður til fjár og frama. Um þá hlið málsins mætti líka skrifa langt mál, en það verðiu að bíða betri tíma.

x

Foreldrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.