Foreldrablaðið - 01.01.1969, Blaðsíða 7

Foreldrablaðið - 01.01.1969, Blaðsíða 7
einn, stundum með öðrum. Og á ein- verustundum í grænum grashvammi uppi í fjalli eða úti við hafið blátt og breitt komu ljóðin, sem við höfðum lært, — ættjarðarkvæðin, — upp í hugann og gáfu fagurri sýn eða ljúf- um áhrifum aukið gildi. Á slíkum stundum var auðvelt að finna, að þetta var okkar land. Hendingar eins og þessar: Landið er fagurt og frítt, Ég elska yður, þér Islandsfjöll og ísland, þig elskum vér, fengu líf, — urðu veruleiki. Slík áhrif íslenzkrar náttúru á mót- un barna og ungmenna eru áreiðan- lega meiri og mikilvægari en menn almennt gera sér grein fyrir. Hvað er ættjarðarást ? Ekki ætla ég mér þá dul að svara því, svo að viðhlítandi megi kalla. Öll ást er á tilfinningasviðinu, og er erfitt að skilgreina hana. Það mætti hugsa sér, að hægt væri að taka myndir af ætt- jarðarást. manna. Þá kæmi eflaust í ljós, að engar tvær myndir yrðu eins. Þær kynnu að sýnast sviplíkar, en blæbrigði margvísleg. Því má einnig gera ráð fyrir, að áhrif hennar á ein- staklingana séu með ýmsu móti. Er ættjarðarást æskileg? Það fer fyrst og fremst eftir því, hver áhrif hún hefur á hvern og einn. Leiði hún til rembings og hroka, jafnvel haturs á öðrum þjóðum, er hún viðsjárverð, að ekki sé kveðið sterklegar að orði. Hins vegar getur jafnvel slík afvega- leidd ættjarðarást knúð til fram- kvæmda og afreka á einhverjum svið- um. En hin eðlilega og frjóa ættjarð- artilfinning, sem áunnin er í bernsku °g æsku við það að kynnast landi sínu, fegurð þess og fjölbreytni, auð- legð þess — og fátækt, er af hinu góða. Hún er af sama toga og fjöl- skylduást og átthagatryggð. Slík ætt- jarðarást gefur lífi okkar gildi, auðg- ar það, veitir ákveðna festu og bind- ur okkur böndum, sem naumast verða slitin sársaukalaust, en þau bönd eru þó engan veginn óbærilegur f jötur, og er þeim með vissum hætti gott að una. Er ættjarðarást hagnýt? Sennilega munu margir svara neitandi, en ég segi já. Hvernig er hægt að rökstyðja það? Sönn ættjarðarást hlýtur að vera öllum hvatning til þess að vera dugandi synir og dætur þjóðar sinn- ar. Slíkt fólk er líklegt til þess að taka jákvæða afstöðu til alls þess, sem það telur horfa til heilla landi og þjóð. Auðvitað verða skoðanir skiptar, en þó minna en vera mundi, þar sem um engar slíkar tilfinningar væri að ræða, en hagsmunasjónarmið einstaklingsins væru einráð. Því fleiri sem hafa vakandi tilfinningu fyrir sæmd þjóðar sinnar, heill hennar og velgengni, því meiri félagslegur styrkur. Hér gildir sama lögmál og í minni félagsskap. Þegar fyrstu kaupfélögin voru að rísa á legg, áttu þau örðugt upp- dráttar. Gömlu kaupmannaverzlan- irnar litu þau óhýru auga og reyndu með mcrgu móti að hindra framgang þeirra. Bændur voru stofnendur þess- ara félaga. Hvernig brugðust þeir við? Þeir unnu sínu félagi og höfðu trú á framtíð þess, og því stóðu þeir fast saman um hag þess og gengi. Fæstir þeirra létu gylliboð kaup- mannanna eða hótanir hafa áhrif á FORELDRABLAÐIÐ 5

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.