Foreldrablaðið - 01.01.1969, Blaðsíða 28

Foreldrablaðið - 01.01.1969, Blaðsíða 28
Það skiptir miklu máli Stefán Ólafur Jónsson hefur um nokkur ár unnið að því að skipu- leggja starfsfræðslu í skólum og leið- beina um náms- og stöðuval. Hann fór til Norðurlandanna í orlofi sínu 1963—’64 til þess að kynna sér slíka starfsemi þar. Heimkominn var hann ráðinn námsstjóri ríkisins í þessum greinum. Nú hefur starfsheiti hans að vísu verið breytt og nefnist hann nú fulltrúi í fræðslumálaskrifstof- unni, en störfin eru þau sömu og áður. Stefán er án efa fróðastur manna um þessi þýðingarmiklu mál, og því æskti Foreldrablaðið þess, að hann gæfi svör við nokkrum spurningum. Og hér birtist viðtalið: — Er þetta starf mikilsvert? — Já, vissulega. Það verður æ meiri þörf fyrir upplýsingar og leið- beiningar um þessi efni, eftir því sem þjóðfélagið verður samsettara og flóknara, kröfur um sérhæfingu meiri, og um fleira að velja á at- vinnusviðinu. Almenningur sér ekki ætíð alla þá möguleika, sem getur verið um að ræða í stöðuvali. Og það er mjög mikilvægt, að ungling- ar átti sig snemma á því, að starfs- val ákvarðast að verulegu leyti af menntun, og þess vegna er ekki sama, hvaða menntunarleiðir eru farnar þar, eftir að skyldunámi lýkur í skóla. — Eru þeir margir, sem leita hjá þér upplýsinga og aðstoðar? -— Síðast liðin tvö ár munu 4 til 5 hundruð manns liafa komið til mín í þeim erindum hvort ár. Þeim f jölg- ar stöðugt. — Kernur unga fólkið af sjálfs- dáðum, eða fyrir áhrif frá öðrum? — Það get ég ekki sagt um með neinni vissu, en vafalaust er um hvort tveggja að ræða. Margir koma fyrir ábendingar frá skólastjóra eða kenn- ara, en einnig foreldrum. Stundum kemur fólk á miðjum aldri og spyr um menntun, sem veiti réttindi til ákveðinna starfa. — En á hvaða aldri eru þeir yngstu, sem koma? — Fáir koma fyrr en 15—16 ára, en flestir eru á aldrinum 17—18 ára. Það er í raun og veru of seint, því að eftir að skyldunámi lýkur, verður unglingurinn að ákveða, hvaða leið hann ætlar að fara í framhaldsnámi sínu, en sú ákvörðun getur oft ráðið miklu um framtíð hans. Á þessum aldri (14—15 ára) er um ýmsar leiðir að velja. Unglingunum er þá frjálst að hætta skólanámi. Það gera þó fáir, líklega innan við 10% hér í Reykjavík. Þá kemur til greina landsprófsleiðin, en landspróf veitir, sem kunnugt er (sé einkunn fullnægj- andi), réttindi til menntaskólanáms, 26 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.