Foreldrablaðið - 01.01.1969, Blaðsíða 12

Foreldrablaðið - 01.01.1969, Blaðsíða 12
Söngleikur í Breiðagerðisskóla. hver kennari gæti kennt sínum bekk söng og þau undirstöðuatriði hans, sem kenna þarf í barnaskólum. Von- andi verður það svo í framtíðinni, að allir kennarar verði færir um að ann- ast söngkennslu, a. m. k. yngri barn- anna, kenna sönglög og iðka söng hver í sínum bekk, en skólasöngur og tónlistarkennsla hlýtur samt allt- af að verða sérstök námsgrein, sem á að fá nægilegt rúm á stundaskrá. — Þá langar mig til að vekja máls á einu. Við höfum stundum, almenn- ir kennarar, rætt það okkar i milli, að síðan farið var að gera meiri kröf- ur um vissa þœtti söngkennslunnar, nótnalestur, raddþjálfun o. fl., hafi margir úr okkar hópi alveg hœtt að láta nemendur sína syngja af ótta við það, að með því væru þeir að rífa niður fyrir söngkennaranum. Hvað er hœft i þessu? — Þetta er misskilningur. Notkun söngs sem félagsiegs gleðigjafa og til hvíldar má alls ekki leggjast nið- ur, enda þótt fagkennarinn reyni að byggja söngkennsiuna þannig upp, að börnin fái nauðsynlega grundvall- arþekkingu, sem þau geta síðar stuðst við. Varðandi raddþjálfun má segja, að fagur framburður og beit- ing raddarinnar í tali er náskylt raddbeitingu í söng. Þar er aðeins um stigsmun að ræða, og þarf að auka kennslu í þessum greinum frá því, sem nú er. — Ég hef ástœðu til að halda, að meira sé um bekkjarsöng i dönsk- 10 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.