Foreldrablaðið - 01.01.1969, Blaðsíða 40
Barnið og heimurinn
Hvernig á heimur okkar að vera?
Hann þarf að vera barninu ákjósan-
leg vistarvera. Ef hann er það ekki,
þá er hann vondur heimur. Ef hann
er barninu hinn bezti dvalarstaður,
þá er hann góður heimur. Þetta er
hinn rétti mælikvarði á heiminn og
alla menningu manna.
Virðið fyrir ykkur ungbarnið, sem
hjúfrar sig upp að móður sinni. Svip-
ur þess er hreinn, fallegur og sak-
leysið sjálft. Það treystir móður sinni
Þeir eru nú fullorðnir menn og hefur hver
gengið sina götu.
og bíður þess að læra af foreldrum
sínum og öðrum allt, sem því er nauð-
synlegt til vaxtar og sannrar far-
sældar. Og því finnst sem hinn hlýi
og góði móðurfaðmur muni ekki geta
sleppt sér út í kaldan og háskalegan
heim.
Þegar þetta er athugað og hugleitt
einlæglega, þá skiljum við hvert æðsta
hlutverk okkar allra er. Það er, að
gera heiminn að hinum ákjósanleg-
asta dvalarstað, að vermireit fyrir
sálarþroska barnsins og góða líkams-
líðan.
Að þessu ber okkur öllum að keppa,
að breyta heiminum í góðan manna-
bústað, heppilegan fyrst og fremst
barninu. En nú höfum við ekki all-
an heiminn í hendi okkar, en við höf-
um okkar litla heim — heimilið —
að miklu leyti í hendi okkar, og sá
litli heimur breytir heiminum öllum
smátt og smátt. Hvert þjóðfélag, sem
á nægilega mörg góð heimili, er far-
sælt þjóðfélag, og heimur, sem á
nægilega mörg góð þjóðfélög, verð-
ur góður heirnur — heppilegur heim-
ur barninu.
Pétur Sigurðsson.
38 FORELDRABLAÐIÐ